Angelic0- wrote:
Þetta voru nú bara þær skýringar sem að mér voru gefnar af þeim sem að voru að vinna þarna hjá Bósa... hefði haldið að mennirnir sem að fjarlægðu bílinn vissu nú eitthvað hvað væri að gerast....
Þó svo að ég hafi hitt eitthvað á samviskuna hjá þér... eða einhvern slæman punkt í taugakerfi þínu... þá er algjör óþarfi að vera að kalla mig heimskan eða eitthvað álíka!
Gott að fá að heyra þína hlið, og geta má að mér finnst hún marktæk!
Og til að svara spurningu sem að kom upp hér fyrr í þessum þræði... þá fékk ég jú mjög slæmt höfuðhögg í bílslysi sem að ég lenti í 21.júlí 2004... en ég held að það hafi nú ekki haft áhrif á hugargetu mína, eða ég vona ekki!
Svo má einnig geta þess að ég var í rétti þar.. 66% en ekki órétti !
*edit*
33% voru dæmd af mér.... fyrir slæma hjólbarða.... en þeir voru btw ekki valdur að árekstrinum á neinn hátt !
Angelic0 þegar svona leiðindi fara af stað er alltaf erfitt að stoppa þau nema að vilji sé til þess frá öllum aðilum...Mér þykir leitt að heyra um þinn árekstur og ennþá leiðinlegra að þessi athugasemd mín sem sögð var í hálfkæringi með höfuðhöggið skyldi eiga við rök að styðjast, vona að þú hafir náð þér fullkomlega og sért við góða heilsu.
.
Umferðaróhöpp eru alltaf slys. Oftast má rekja þau til mannlegra mistaka eða lélegs búnaðar. Mistökin mín voru t.d. að hemla ekki niður um leið og sólin blindaði mig og ekki er ég að skorast undan þeirri ábyrgð á neinn hátt; er bara þakklátur að ég slasaði engan varanlega og að allir sluppu lifandi.
.
Það sem fer í taugarnar á mér er að sum umferðaróhöpp geti verið asnalegri en önnur og að hugsanlega séu til FLOTT umferðaóhöpp. Það gengur bara ekki upp, eftir því sem að ég best veit. Umferðaróhöpp eru öll hræðileg og hafa í för með sér tjón á eignum, hræðileg slys og jafnvel dauða. (Því þætti mér vænt um ef að þú breyttir þessum texta í auglýsingunni minni)
.
Að lokum vil ég segja: Ég hef ekki kallað þig heimskan eða gefið það í skyn; og þessar upplýsngar sem að þú hefur frá e-m sem ekki voru viðstaddir umferðaróhappið eru bara ekki réttar (eins og komið hefur fram).