by JOGA » Wed 24. Jan 2007 10:49
Án þess að ég hafi mikla persónulega reynslu þá fer þetta alfarið eftir gormum.
Getur fengið gorma sem lækka mikið og eru þræl stífir. Þeir myndu breyta aksturseiginleikum mikið og líklegast rústa orginal dempurum fljótlega. Þá á að nota með dempurum í stíl. Bíllinn liggur oftast eins og klessa eftir svona breytingu en getur orðið hastari en hestakerra (hef reynslu af þessu).
Getur líka fengið gorma sem lækka lítið og eru ekki sérlega stífir. Ættu að vera til gormar frá t.d. Eibach sem tóna ágætlega við orginal demparana og halda einhverji mýkt í bílnum (ekki mikla reynslu af þessu en er að leita að svona setupi í Touring).
Átt að geta fengið það uppgefið hversu stífir gormarnir eru og getur borið þá saman þannig (að því gefnu að gæðin séu sambærileg).
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir