Ég var í Bónus í Smáratorgi fyrir nokkrum dögum og þá var fullt af kössum í horninu fyrir aftan afgreiðslukassana.
Svo var ÁTVR í kópavoginum, bakvið smáratorg duglegir við að safna kössum einu sinni, veit svosem ekkert hvernig það er í dag hjá þeim.
Ef þú færð eitthvað af bananakössum, sem eru mjög góðir kassar, passaðu að taka ekki kassa sem eru með eitthvað afgangsgrænmeti eða bönunum í, yfirleitt orðið úldið og fullt af flugum og oj.... maður bara missir algjörlega listina á að nota kassana eftir að hafa lent í svoleiðis.
Svo auk Kassagerðarinnar þá langar mig að benda þér á Samhenntir Kassagerð
www.umbudir.is , ég hef verslað aðeins við þá í gegnum fyrirtækin sem ég hef unnið hjá, mæli með þeim.
Mín reynsla er reyndar að kaupa þetta í brettavís.
En ég mæli alltaf með því að þegar fólk er að flytja, kaupa sér nokkra nýja ónotaða, hvort sem það er hjá Kassagerðinni eða Samhenntum Kassagerð, kostar um 150-250 kr stykkið, fer eftir stærð. Alltaf eitthvað af dóti sem manni er ekki alveg sama um og vill þá frekar nota nýja kassa undir.
Gangi þér annars vel, bæði með að finna kassa og svo að flytja.