Jæja eins og topicið segir,
Flangsarnir hægra megin eru úr gamla opna drifinu og þessi vinstra megin er úr "nýja" læsta drifinu
Ég s.s. keypti þetta drif frá Kanada í gegnum Ebay. Þetta drif á að vera samkvæmt gaurnum sem seldi mér drifið úr E34 535. Ég því miður veit ekki hvaða árgerð af 535 það var, en bara svona til öryggis þá rifum við flangsana úr báðum drifunum og bárum saman. Þá komumst við að því að flangsarnir í gamla drifinu eru lengri, sverari og þar að auki ná lengra út úr drifinu

Ég veit að þetta drif myndi alveg passa í sjöuna en það mundi kosta aðra öxla og drifskaft, þannig að mig langar að vita í hvernig bíl passar þetta eiginlega?? Ég myndi halda þar sem að flangsarnir eru minni að þá þolir drifið þá væntanlega minna átak eða hvað??