Fimman mín er soldið leiðinleg í bakkgírnum (beinskiptur). Þetta lýsir sér þannig að þegar maður er að taka af stað í bakkgír á hann það til að detta úr gírnum með tilheyrandi látum. Ef maður er mjög rólegur á gjöfinni og kúplingunni, eða bara heppinn, þá gerist þetta ekki. En þetta er að gerast oftar hjá konunni en hjá mér
Er einhver hérna sem kannast við þetta eða getur leiðbeint mér með hvernig á að laga þetta? Annars sögðu þeir í B&L að það væru margir bílar með þennan kassa og ætti ekki að vera mikið mál að finna notaðann. Passa allir kassar af M52 mótorum á þennan mótor eða þarf það að vera kassi úr 523i/323i?
Takk

