Kom mér allavega smá á óvart þegar ég keyrði hann fyrst, hafði nú miklar efasemdir og sérstaklega fyrir 520 bílum, hélt að ég myndi aldrei fá mér svoleiðis og hvað þá diesel! Hafði aldrei keyrt diesel neitt að viti áður en ég prufaði þennan og hann kom bara nokkuð skemmtilega á óvart.
Þetta er auðvitað engin reis græja, en ég sé engan veginn eftir STi bílnum sem ég seldi áður en ég fékk þennan þótt hann hefði næstum 200 hesta framyfir þennan. Þæginlegt að keyra þetta, lookar flott og eyðir litlu
Ég er allavega vel sáttur, ég get bara ekki unnið svona mikið með skóla til að halda honum á planinu hjá mér án þess að missa geðheilsuna
