Jæja guttar....
er mönnum ekki farið að vökna um of um augun, ef til vill af óþarflegum ástæðum?
Gott og blessað, ég skil mjög vel að fólk nenni ekki að lesa "gelgjumál" eða setningar eftir illa skeinda aula sem NENNA ekki að skrifa skiljanlega Íslensku.... en að menn séu að láta rangan rithátt, i-y villur og álíka, fara í taugarnar á sér svo þeir verða allt að því svefnvana yfir þessu. Það skil ég ekki.
Ég VAR mjög góður í stafsetningareglum og réttritun í grunnskóla, en staðreyndin er sú að það eru mjög fáar reglur um réttritun sem ég man núorðið. Og skrifa ég því oftast orðin bara eins og ég annað hvort veit að þau eiga að skrifast, eða að ég HELD að þau eigi að skrifast.
má vel vera að í þessum texta hjá mér séu 50 villur varðandi stafsetningu og réttritun... en mér væri bara skítsama ef einhverjum dytti í hug að fara að skæla í mér yfir því, vegna þess að þetta er AUÐSKILIÐ hjá mér samt sem áður. Og eins og Hannes sagði, þá fara innsláttarvillur og stafsetning ekki í taugarnar á mér, heldur fólkið sem er sínöldrandi í öllum yfir því.... Jújú, allt í lagi að benda á ef eitthvað er miður, en að láta eins og einhver sé óskiljanlegur BARA af því það vantar eitt n á réttan stað.
Tók sérstaklega eftir einu slíku atviki um daginn.... þegar Sæmi lét eins og hann gæti ómögulega skilið hvað Tommi Camaro sagði í þræðinum þar sem einhver guttinn spurði eftir hurðarhún á '97 520 bíl...
saemi wrote:Tommi Camaro wrote:hvað hún er þetta gæti átt hann til
Hvað á að standa þarna?
Í alvöru... þetta er auðskilið þegar maður les þetta með það fyrir augum um hvað var beðið í þræðinum... Málið er að stundum þarf maður að hafa fyrir hlutunum, maður getur ekki ætlast sífellt til þess að maður sé mataður af öllu.. Þarna hefði Sæmi klárlega átt að geta fundið út hvað Tommi var að segja, hefði hann bara lesið svarið með það í huga um hvað var beðið. Ekki með því hugarfari að þetta væri vitlaust skrifað og því óskiljanlegt, eins og hann virðist gera.
Alls ekkert diss á þig svo sem Sæmi, þetta var bara nýlegasta dæmið sem ég fann..