saemi wrote:BMWaff wrote:Mér er alveg sama hvernig ég skrifa hérna... Sé enga ástæðu til að reyna að skrifa eitthvað hægar og svo að leiðrétta þetta... Þetta er nú bara spjall ekki grein í tímariti...
Ég skil heldur ekki fólk sem hefur ekkert annað að gera en að la´ta svona fara í taugarnar á sér... Finnst það álíka asnalegt og ef þú værir að láta starfsfélaga fara í taugarnar á þér af því að hann er í rauðum bol...
En það sem ég veit að háir mér mest í þessu er helvítis SMS-in... Mar hefur í gegnum tíðina reynt að stytta orð til að þurfa að skrifa minna og þá búið til allskonar orð til...
Eini staðurinn sem ég reyni að passa stafsettningu er eitthvað sem tengist vinnu...
Þú um þig frá þér til þín.
Ég held að þú ættir nú aðeins að fara að endurskoða viðhorf þitt til lífsins. Það snýst ekki allt um þig. Þjóðfélagið er ekki þannig að þú getir gert það sem þú vilt og kært þig kollóttann um það sem öðrum finnst.
Að sjálfsögðu getur enginn skikkað þig til að skrifa rétt, en er það ekki vanvirðing við aðra að kæra sig kollótta um hvað þeim finnst? Kannski finnst okkur leiðinlegt að lesa vitleysur eftir þig og viljum ekki hafa svoleiðis á spjallinu, það ert ekki bara þú sem notar spjallið.
Af hverju passar þú þig í vinnunni varðandi stafsetningu? Af hverju gefur þú þá ekki bara skít í allt? Hver er munurinn á því að vera í vinnunni og ekki, fær fólk ekki sama álit á þér þar og annarsstaðar?
Þú skalt nú ekki segja mér hvernig mitt viðhorf á að vera og ekki halda að þú getir dæmt hvernig það er útfrá einum pósti um það að ég nenni ekki að láta stafsettningarvillur á BMWKraftur.is/spjall eyðileggja dagin hjá mér... Ég bað þig ekki um að breyta / eða setti út á þitt viðhorf gagnhvarft þínu lífi og það kemur mér bara ekki við...
Engin rosa pirringur... En jú smá... Leyfðu mér að hafa mínar skoðanir og hafð þú þínar í frið...



