Jæja, er ekki málið að hrista af sér jólaslenið í einhverjum framkvæmdum
Tilgangurinn var að búa til
heimili fyrir dekurdýrið. En í því fólst:
-klæðningin að innan var lagfærð og endurnýjuð að hluta
-bílskúrshurðin var þétt og klædd að innanverðu
-spartslað og kíttað hér og þar
-mestur hluti gólfsins flotaður og síðan flísalagður
-kanntur brotinn með múrbrjót, steypt og gerður "spoilervænn"
-lýsing öll endurnýjuð
-16A tengi í töflu fyrir háþrýstidælu
-bílskúrshurðaopnarinn
-hreyfiskynjari, kveikir ljós þegar hurð er opnuð
-málaðar þrjár umferðir
-allt timbur lakkað
-allir kaplar límdir upp með límbyssu og síðan málað yfir til að auka viðloðun
-síðan eitt og annað sem ég er að gleyma
Yfirlitsmynd:
Þannig loksins er bílskúrinn kominn, orðinn nokkuð þreyttur á því að
baksast með bílinn hér í Þingholtunum, hvort sem það er vetur eða
sumar. Nú er bara að sækja krossarann og henda honum inn líka.
En get alveg mælt með svona bílskúrshurðaropnara, engin læti og tiltölulega
einfalt að setja þetta upp. Ég reyndar keypti aukafjarstýringu en get engan
veginn forritað hana.
Flísarnar eru sérframleiddar fyrir GM og eru fáranlega þykkar, svo þykkar
að ég bræddi nánast úr flísasöginni minni og þurfti því að leigja sög af
stærstu gerð. Einnig sett ég fláva á kanntinn við hurðina þar sem hann
var of hár til að fara "þægilega" inn í bílskúrinn, sé ekki eftir því.
Nokkrir hafa kommentað á ruglið að hafa halógen lýsingu í bílskúrinn, en
satt að segja er ég mjög sáttur við hana.
Well hér eru nokkrar myndir:
Allar stórar