Ég spjallaði við Walter Röhrl í haust og hann sagði að það hefði komið honum ótrúlega á óvart hve framfarirnar í Rallýbílum væru síðan hann keppti á Audi Quattro. Hann hafði fengið að keyra nýjan Skoda Fabia rallýbíl og hann sagði að gamli Audi-inn hans ætti ekki séns í Skodann í hröðun (og reyndar öllu öðru) og það þrátt fyrir að skodinn væri framhjóladrifinn og Audi-inn fjórhjóladrifinn og að auki meintur aflmunur skodanum í óhag.
Hann sagði jafnframt að mestu framfarirnar hefðu orðið í dekkjum og þau réðu úrslitum í hve Fabian var snöggur af stað, þrátt fyrir að vera aðeins með drif að framan.
Þannig að það er alveg ljóst að tæknin eins og hún er í dag, hefur skipt sköpum. En það eru nú alltaf gömlu jaxlarnir sem kenna þeim yngri.




