Fyrir áhugasama:
Fyrsta opinbera viðtalið við Richard Hammond "The Hamster" eftir bílslysið sem varð fyrir um þremur mánuðum eða í september á þessu ári.
Viðtalið verður í kvöld í þættinum Friday Night with Jonathan Ross á bresku sjónvarpstöðinni BBC one og byrjar þátturinn klukkan 10:35 að íslensku og breskum tíma.
Fyrir þá sem ekki vita sem ég tel ekki marga hérna þá er Hammond (36 ára og á tvö börn) einn af þremur þáttastjórendum bílaþáttanna vinsælu TopGear á BBC two. Hann er einnig þáttastjórandi vinsælu tilraunaþáttanna Brainiac.
Í lok september voru þeir að taka upp atriði fyrir TopGear þar sem Hammond var að aka einum hraðskreiðasta spyrnubíl bretlands kallaður Vampire á flugbraut. Talið er að þeir hafi ætlað að reyna slá hraðamet til að geta sagt að einn af þeirra þáttastjórnendum væri hraðskreiðasti ökumaður bretlands. Í fyrstu átti James May að keyra en einhverja hluta vegna skiptu þeir.
Talið er að Hammond hafi verið á um 280-300 mílna hraða eða um 450-480 km hraða á klukkustund þegar bílinn lyftist upp og valt margar veltur.
Hingað til hefur ekkert almennilega komið framm hvað fór úrskeiðis en helsta ástæðan sem talað hefur verið um er að dekk hafi spurngið.
