Ég er að eignast E46 og vantar smá info. Hann er að koma frá Þýskalandi og mig langar helst til að taka með honum ný stefnuljós og fleira um leið og ég flyt hann inn. Veit einhver um netverslanir í þýskalandi sem selja E46 aukahluti.. best væri náttúrulega ef hægt væri að fá upplýsingar þar á ensku en ekki þýsku.
Eins er ég líka búin að vera að reyna að fá upplýsingar um E46, staðalbúnað og annað en finn ekkert nema .com síður. Vitið þið um einhverjar góðar evrópskar síður með þessum upplýsingum? (samanburðarhæft við E46fanatics.com)




