Eini BMWinn sem ég umgengst sem er með einhvern tæknibúnað er X5.
Fyrst þegar kallinn fékk hann þá hugsaði ég með mér; voðalega er BMW langt á eftir í svona lyklamálum, ekkert í fjarstýringunni nema opna skottið, læsa og opna. Man was I way off
Þegar ég fór að lesa el manuel þá kom í ljós að það er hægt að gera ótrúlegustu hluti með þessu. Þetta venjulega + lyklarnir læra stillingarnar á stýri, speglum og sæti, hægt er slökkva á skynjurunum í þjófavörninni, kveikja á sírenunni (þjófavörninni)
Og opna og loka öllum gluggum og topplúgunni! Fannst þetta auðvitað heimskulegt fyrst og bara svona for show en svo kemur á daginn að þetta er voða þægilegt þegar maður gleymir að loka topplúgunni eða eitthvað.
Þessir lyklar leyna á sér
Saxi