Það er ekkert algilt að mikið keyrðir bílar brenni mobil 1 0w-40. Fer bara eftir sliti á vélunum.
Vélin hjá mér virðist allavega vera nokkuð heil, því hún er keyrð 240þús km og brennir alls ekki mikið af mobil 1, hef allavega ekki þurft að bæta á milli olíuskipta ef ég skipti á ca. 7500km fresti.
En olían á að þola mun meiri akstur en það, ég bara treysti síunni síður fyrir því.
Ég mæli alveg með því að prófa mobil 1, ef bíllinn hefur ekki verið að brenna miklu fyrir. Það verður bara að fylgjast aðeins með því til að byrja með hvort vélin brenni, ef svo er þá er bara að fara í aðeins þykkri olíu, s.s. 5w-30

