Gesta póstar.

Hér skal spjalla um BMW.

Postby Gunni » Tue 15. Jul 2003 12:12

En þurfa menn eitthvað að skammast sín fyrir það sem þeir segja ? Ef svo er þá þurfa þeir hvorteð er ekkert að segja það. Þeir sem ekki þora að skrifa undir nafni eiga ekkert að hafa þetta sem einhver griðastað til að ausa úr skálum reiði sinnar.

Það er t.d. ekki hægt að skrifa óskráður á hugi.is. Af hverju ætti að vera opið hér en ekki þar ?
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby iar » Tue 15. Jul 2003 12:17

bebecar wrote:Mér finnst bara rökin fyrir því að loka á þetta frekar veigalítil. Eru þau ekki helst þau að forðast að menn séu með skítkast. Það er nú ekki mikið mál að eyða slíkum þráðum út.

Það er líka oft þannig að menn sejga eitthvað sem skiptir máli frekar ef það er ekki undir nafni.

Það var mikil umræða um svona mál á innherja síðunni á visir.is en þar hafa oft komið mikilvægar upplýsingar úr viðskiptalífinu og menn skiptast á skoðunum einmitt vegna nafnleyndar.

Einu haldbæru rökin fyrir því að breyta þessu er sú að það er hvimleitt að notast við svona síður ef maður heitir svo raunverulega Gestur og hefur valið sér það nikk :wink:


Ég held að innherjasíðan hjá Vísi sé ekki gott dæmi í samanburð á reglum á spjallborðum varðandi gestapósta og nafnleynd. :-) Ég fór aðeins á flakk og athugaði þrjú spjallborð, hjá Live2Cruize, Ferðaklúbbnum 4x4 og Hugi.is/bilar og allstaðar þarf að skrá sig inn til að geta póstað svo þetta er ekki svo óvenjulegt.

En óháð öllum samanburði við aðrar síður þá finnst mér þetta alveg tilvalið að takmarka pósta við skráða notendur. Það er nú ekki svo mikið mál að skrá sig og ekki eins og þurfi að gefa upp miklar persónuupplýsingar eins og t.d. hugi.is sem krefst þess að gefa upp kennitölu :!: við skráningu.
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby bebecar » Tue 15. Jul 2003 12:17

Notendur á huga hlaupa á þúsundum!

Þið ættuð að vita hvað ég á við, það er algengt að fólk veigri sér við að segja ýmislegt án þess þó að vera eitthvað dónalegt ef það þarf að koma fram undir nafni...

Og eins og áður sagði finnst mér eðlilegt að fólk skoði spjallsvæðið aðeins áður en það pælir í hvort það ætli að skrá sig.

Ef þú þarft að skrá sig þá eru margir sem nenna því ekki og sleppa því að koma með komment frekar en að skrá sig. Þeir sem hinsvegar geta kommentað sem gestir hljóta að vera líklegri til að skrá sig eftir að hafa komið nokkrum kommentum á framfæri.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby benzboy » Tue 15. Jul 2003 21:35

Gunni wrote:En þurfa menn eitthvað að skammast sín fyrir það sem þeir segja ? Ef svo er þá þurfa þeir hvorteð er ekkert að segja það. Þeir sem ekki þora að skrifa undir nafni eiga ekkert að hafa þetta sem einhver griðastað til að ausa úr skálum reiði sinnar.

Það er t.d. ekki hægt að skrifa óskráður á hugi.is. Af hverju ætti að vera opið hér en ekki þar ?


Orð í tíma töluð og ekkert vandamál að standa við það sem maður segir
XC 90 2005 V8 (frúarbíllinn)
Suzuki Hayabusa GSX1300R 1999
B3 biturbo 2008 #101 (on it's way)
User avatar
benzboy
Getawaybílstjóri
 
Posts: 834
Joined: Sat 03. May 2003 18:27

Postby bebecar » Wed 16. Jul 2003 08:57

Mér er sosem alveg sama.

En vildi bara koma því á framfæri að ég sjái ekkert að því þó einhverjir láti móðin mása án þess að koma fram undir nafni. Ef einhver fer yfir strikið þá má alltaf eyða þeim texta út.

Frjáls skoðanaskipti, takk fyrir, með kostum og göllum.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 4 guests