Jæja, nú er maður kominn með Inspection II. Var reyndar kominn langleiðina með að fá hana upp á eigin spýtur með að kaupa bara nýtt stuff í bílinn
Svo var skipt um framrúðu, bíllinn hjólastilltur og skipt um plasthlífina sem ég smallaði með útafakstrinum út á braut.
Strongstrut braceið var sett á og þurfti smá TLC hammer time til að koma því á þar sem turnarnir voru byrjaðir að aflagast. Nú er það allt komið í lag og ætti að vera betra með þessa styrkingu.
Svo var smá vesen með SC setupið - ein slangan í olíukerfinu farþegamegin hafði nuddast við AC trissu og smásaman gert gat. Hann var byrjaður að leka olíunni og svo undir lokin tæmdi hann sig bara á 1-2 dögum. Þannig að það var ný slanga búin til og routað aðeins öðruvísi þannig að þetta á ekki að koma fyrir aftur.
Svolítið gaman að segja frá því að þegar ég var að keyra á honum heim aftir að hafa náð í hann tók ég smá rúnt og var eitthvað smá búinn að fíflast milli ljósa á Sæbrautinni. Svo rétt á eftir er ég að keyra inn að aðstöðu og eltir mig ekki löggubíll og alveg inn í horn. Ég hugsa með mér "goddamnit, hvar voru þeir!?!?!?" enda hafði ég ekki séð þá.
Fer út og geng að lögreglubílnum og sé þá að þetta var Logi sem vildi bara spjalla
Anyways, seinna um kvöldið var bíllinn farinn að vera undarlegur, Dr. E31 getur vitnað um það - grófur gangur og lausagangurinn funky. Skipti um loftflæðiskynjara áðan (já enn einu sinni) og allt í goody - gangurinn batnaði strax. Búinn að vera að tilkeyra skynjarana í kvöld og bíllinn er að laga sig að þeim - virkar vel

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...