force` wrote:
ValliFudd wrote:
force` wrote:
ValliFudd wrote:
Innlent | mbl.is | 2.12.2006 | 16:13 wrote:
Maður sem fékk hjartaáfall eftir átök við lögreglu lést í morgun
Maður sem lögregla handtók aðfararnótt sunnudagsins síðastliðins, eftir að hann gekk berserksgang á hóteli í Reykjavík, lést á sjúkrahúsi í morgun. Lögreglumenn þurftu að beita manninn valdi við handtökuna og fékk hann hjartaáfall í vörslu þeirra. Honum var haldið sofandi á sjúkrahúsi eftir það. Lögregla telur manninn hafa verið undir áhrifum fíkniefna þegar á hann rann æðið, en það hefur ekki verið staðfest og málið er í rannsókn.
Enn halda þeir áfram að tala um óstaðfesta eiturlyfjanotkun.. Hvernig væri að halda kjafti um svoleiðis hluti þar til það er pottþétt... Þetta er nú argasti dónaskapur að hálfu lögreglu og óafsakanlegt..
Fékk hjartaáfall ... fékk hann núna hjartaáfall...
þeir eru nú búnir að halda því fram frá fyrstu frétt, svo það er ekkert nýtt..
ég er kanski ekki sú fróðasta hvað varðar hjartaheilsu og kvilla, en ég hef alltaf túlkað hjartastopp og hjartaáfall sem tvennt ólíkt.
Ekki að það skipti máli í þessari umræðu, en það er rétt hjá þér að hjartastopp og hjartaáfall er tvennt ólíkt.
Hinsvegar er hjartastopp oft afleiðing af hjartaáfalli.
Hjartaáfall getur orðið t.d. vegna súrefnisskorts, mikils álags eða veikinda.
Þessu er oft blandað saman enda náskylt.
Annars vil ég votta aðstandendum mannsins alla mína samúð!