force` wrote:Ég reyni amk að vera eins málefnaleg og ég get,
þó það hafi eitthvað komið framm í fjölmiðlum eins og ég sagði áðan, þá hafði ég ekki leitað á vísi td að fréttum af þessu.
En hinsvegar vil ég bara að sem flestir lesi af þessu og séu "með á nótunum" ef svo má að orði komast.
Það virðast of fáir vita af þessu máli, á annann máta en er skrifað um ALLT sem gerist hjá lögreglunni, orðað afar prúðlega nema í garð þeirra manneskju sem komst í kast við lögin.
Ferlega skondið að lesa þessi fréttaskot, að það er strax stokkið inná að hann hafi bara fengið hjartastopp á leið á lögreglustöð.
Bíddu, þrítugur maður, sat hann bara þarna og fékk hjartastopp bara uppúr þurru? Veit nú bara ekki til þess að það sé algengt að menn verði svo stressaðir af því að sitja í lögreglubíl, að þeir bara falli í hjartastopp.
Og hvað þá af lögreglu að halda fram lyfjaneyslu í óstaðfestum fréttum. Getum við þá ekki talað um morð í óstaðfestum fréttum....


