Enn kemur BMW við sögu í blöðunum

Hér skal spjalla um BMW.

Postby freysi » Thu 30. Nov 2006 23:03

Aron Andrew wrote:
Hannsi wrote:farinn að sofa útskýri á morgunn eftir vinnu ;)


Hvað á að útskýra?

Hannsi var bara tekinn, varla einhverjar afsakanir fyrir því :roll:


enda erum við ekkert að biðja hann um að afsaka þetta fyrir okkur :roll:


Bara frekar segja okkur hvernig málin standa hjá honum og hvað gerist :?
E90 320i '06

birkire wrote:4 door þristar... LEIM
freysi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 495
Joined: Mon 10. Nov 2003 01:11
Location: Honolulu, Hawaii

Postby gulli » Thu 30. Nov 2006 23:22

sma svona :offtopic: hja mer en ég var að keyra uti garð i dag og tók frammúr bil sem var á eitthvað um 80kmh ég for uppi 130km mest og mætti akkurat löggu þegar ég var bara að fara að beygja inna minn vegarhelming... ég bara fokk byrjaði að bremsa, var svo viss um að hun myndi stoppa mig. En nei hun bara helt áframm blikkaði ekki einu sinni háuljósunum.... og eins og bróðir minn sem var með mér sagði "hva helduru að hun nenni að stoppa, buinn að fa i rikiskassan sem þarf fyrir þennan mánuð og næsta. sem var kannski bara ágætt á ekki það mikinn pening :lol: en já allavega... langaði bara að segja frá þessu

(kannski að hannsi hafi bjargað mer þarna)
gulli
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2195
Joined: Fri 17. Sep 2004 02:24

Postby ValliFudd » Fri 01. Dec 2006 13:03

Morgunblaðið (pappírinn sjálfur) í dag segir að eigandi BMW bifreiðarinar neiti að hafa verið ökumaður í umræddu skipti..

Enn tuða þeir um að þetta hafi nú örugglega verið BMW þó það komi málinu ekkert við :)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby freysi » Fri 01. Dec 2006 14:14

enda líka bara stórglæpamenn sem keyra um á BMW
E90 320i '06

birkire wrote:4 door þristar... LEIM
freysi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 495
Joined: Mon 10. Nov 2003 01:11
Location: Honolulu, Hawaii

Postby gunnar » Fri 01. Dec 2006 15:24

Við þurfum að fara fá það í gegn á Alþingi að fá okkar eigin fangelsi fyrsti við erum svona merkilegir að við séum bílgreindir alltaf í fréttunum.

BMW dómstóla á minn disk! :lol:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Gunnar Þór » Fri 01. Dec 2006 15:25

freysi wrote:enda líka bara stórglæpamenn sem keyra um á BMW


Gömul frænka apeshittaði gjörsamlega þegar hún sá mig á svörtum BMW - vissi ekki hvert hún ætlaði - hélt að strákurinn væri farinn að díla.
MY2002 E46 330d Touring - Mr.X remap
User avatar
Gunnar Þór
Kassabílstjóri
 
Posts: 205
Joined: Sat 12. Aug 2006 19:59
Location: Hafnarfjörður

Postby ValliFudd » Fri 01. Dec 2006 15:29

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1238694

Ekki hefur þessi verið á bmw :)

mbl.is wrote:Á 165 km hraða á Vesturlandsvegi
Lögreglumenn frá Akranesi mældu í morgun hraða bifreiðar sem ekið var á 165 km/klst á Vesturlandsvegi í Kollafirði. Akstur bifreiðarinnar var stöðvaður og skýrsla tekin af ökumanni. Lögregla segir, að samkvæmt reglugerð um sektir og viðurlög vegna brota á umferðarlögum, sem gildi tók í dag, getur ökumaðurinn reiknað með 90.000 kr sekt og sviptingu ökuleyfis í tvo mánuði.

Lögreglan bendir á, að ökumaðurinn hafi aðeins verið einum km frá því að hækka sektina í 110.000 krónur og sviptinguna í þrjá mánuði.

Aðeins nokkrum mínútum eftir að afgreiðslu þessa máls lauk, mældist hraði annars bílsr 116 km/klst á sama stað. Ökumaður þess bíls var hinsvegar handtekinn þar sem af honum lagði áfengisþef og öndunarpróf gaf til kynna að hann væri ölvaður. Hann var færður til yfirheyrslu og úr honum tekið blóðsýni áður en hann fékk að fara frjáls ferða sinna bíllaus.
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby ///M » Fri 01. Dec 2006 15:35

ValliFudd wrote:http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1238694

Ekki hefur þessi verið á bmw :)

mbl.is wrote:Á 165 km hraða á Vesturlandsvegi
Lögreglumenn frá Akranesi mældu í morgun hraða bifreiðar sem ekið var á 165 km/klst á Vesturlandsvegi í Kollafirði. Akstur bifreiðarinnar var stöðvaður og skýrsla tekin af ökumanni. Lögregla segir, að samkvæmt reglugerð um sektir og viðurlög vegna brota á umferðarlögum, sem gildi tók í dag, getur ökumaðurinn reiknað með 90.000 kr sekt og sviptingu ökuleyfis í tvo mánuði.

Lögreglan bendir á, að ökumaðurinn hafi aðeins verið einum km frá því að hækka sektina í 110.000 krónur og sviptinguna í þrjá mánuði.

Aðeins nokkrum mínútum eftir að afgreiðslu þessa máls lauk, mældist hraði annars bílsr 116 km/klst á sama stað. Ökumaður þess bíls var hinsvegar handtekinn þar sem af honum lagði áfengisþef og öndunarpróf gaf til kynna að hann væri ölvaður. Hann var færður til yfirheyrslu og úr honum tekið blóðsýni áður en hann fékk að fara frjáls ferða sinna bíllaus.


:lol: :lol:
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Postby Aron Andrew » Fri 01. Dec 2006 15:51

Djöfulli er búið að hækka sektirnar :shock:

Hannsi fengi örugglega 300 þús sekt ef þetta hefði verið í nótt :lol:
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby Hlynzi » Fri 01. Dec 2006 16:20

Aron Andrew wrote:Djöfulli er búið að hækka sektirnar :shock:

Hannsi fengi örugglega 300 þús sekt ef þetta hefði verið í nótt :lol:


Einungis ef það er viðurkennt hver ók bílnum á tilteknum tíma.
En það mun falla undir verðþak gærdagsins.

Og núna verðum við að passa okkur, við gætum verið sektaðir fyrir að aka um á 86 km hraða í ártúnsbrekkunni. Ég er viss um að lögreglan á Blönduósi er hrifin af því að geta loksins sektað fólk fyrir að aka undir 100.
Svo spyr maður sig, til hvers er þetta, fólk fer ekki eftir lögum um að tala ekki í síma undir stýri, þetta mun lítið sem ekkert lækka umferðar hraða, er þetta bara endurbætt aðferð við að fá pening í kassann ?
Og svo munu örugglega hraðamyndavélar bætast við bráðlega í auknu magni.
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla
Hlynzi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 586
Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Location: Grafarvogur

Postby Aron Andrew » Fri 01. Dec 2006 16:26

Ég heyrði eitthvað talað um að það væri verið að fara að setja upp meðalhraðamyndavélar á Reykjanesbrautinni, hljómar eins og eitthvað sem mun gera of mikið af mistökum :?
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby Hlynzi » Fri 01. Dec 2006 17:05

Aron Andrew wrote:Ég heyrði eitthvað talað um að það væri verið að fara að setja upp meðalhraðamyndavélar á Reykjanesbrautinni, hljómar eins og eitthvað sem mun gera of mikið af mistökum :?


Mæla þær ekki milli 2 púnkta hversu fljótur maður er á milli þeirra ?
Sjáum hvort við getum ekki ekið á 30 hálfa leiðina og kannski 100+ rest.
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla
Hlynzi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 586
Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Location: Grafarvogur

Postby DiddiTa » Fri 01. Dec 2006 17:27

Ef maður vill endilega brjóta af sér getur maður þá bara ekki tekið plöturnar af rétt meðan maður keyrir framhjá þeim? tekur svona 10 sek að henda þeim af og á
DiddiTa
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 429
Joined: Thu 30. Dec 2004 14:16

Postby Bjarkih » Fri 01. Dec 2006 17:40

DiddiTa wrote:Ef maður vill endilega brjóta af sér getur maður þá bara ekki tekið plöturnar af rétt meðan maður keyrir framhjá þeim? tekur svona 10 sek að henda þeim af og á


Ekki það að ég sé að hvetja til þess, en er ekki fljótlegra að teipa bara yfir númerið en að rífa plöturnar af?
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby ValliFudd » Fri 01. Dec 2006 17:50

Bjarkih wrote:
DiddiTa wrote:Ef maður vill endilega brjóta af sér getur maður þá bara ekki tekið plöturnar af rétt meðan maður keyrir framhjá þeim? tekur svona 10 sek að henda þeim af og á


Ekki það að ég sé að hvetja til þess, en er ekki fljótlegra að teipa bara yfir númerið en að rífa plöturnar af?

http://www.geekologie.com/2006/07/license_plate_blurring_device.php
eða kaupa svona :wink:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 30 guests