drolezi wrote:Leikmaður wrote:drolezi wrote:...................Það EINA sem ég sé þeim í hag er í Skaðabótalögum nr. 50 frá 19 maí 1993.
- Code: Select all
24. gr. Lækka má bótafjárhæð eða fella niður skaðabótaábyrgð ef ábyrgðin yrði hinum bótaskylda svo þungbær að ósanngjarnt má telja eða álíta verður að öðru leyti skerðingu eða niðurfellingu sanngjarna vegna mjög óvenjulegra aðstæðna. Þegar metið er hvort ástæða sé til að beita heimildinni skal líta til þess hve mikið tjónið er, eðlis bótaábyrgðar, aðstæðna tjónvalds, hagsmuna tjónþola, vátrygginga aðila og annarra atvika.
Skaðabótalögin sem slík varða einungis skaðabætur utan samninga, hér erum við að tala um skaðabætur innan samninga og kemur þetta ákvæði þessu því ekkert við![]()
Skoða frekar lög um vátryggingarsamninga frá '04
http://www.althingi.is/lagas/132b/2004030.html
Nei, varla getur ábyrgðartrygging talist innan samninga þar sem ábyrgðartrygging bætir tjón þriðja aðila.
Ábyrgðartryggingin felst í samning milli aðila (vátryggðum/tjónvaldi) og fyrirtækisins, burt séð frá því hver verður fyrir tjóninu.
Ef hins vegar ég myndi labba upp að bílnum þínum og skemma hann, þá erum við að tala um skaðabætur utan samninga og mundir þú geta fengið skaðabætur dæmdar frá mér á grundvelli skaðabótalaga.


