Ég hef alltaf fílað Mini, ég prófaði einu sinni Mini Mayflower '91, held ég að hann heiti, djöfull var gaman að keira það maður.
Eru brettaútvíkkanir á honum? Mjög flottur bíll.
Þeir eru dýrir og ekkert að lækka í verði. Bíll sem er eins og þessi var þegar ég keypti hann kostar ívið meira hingað kominn en það sem ég borgaði fyrir hann.
Gunni skrifaði
flottur bíll! Hvað er stór vél í honum ?
1300, tæp 70 hö
Ps. Myndirnar detta stundum út af því það er einhver kvóti á síðunni þar sem þær eru geymdar
Hvað er svona sirka verð á svona bíl?
Þá er ég ekki endilega að meina hvað þú borgaðir fyrir hann, heldur
svona bara t.d. hvað væri sett á hann á bílasölu?
Og hvar fékkstu þetta ótrúlega töff brettaútvíkkunar-"kitt" ?
Er þetta heima-/sérsmíðað?
Það væri sjálfsagt hægt að fá svona bíl á e-ð í kringum 500 þús.kall. Ekki minn samt! Kittið keypti ég í UK, þetta er sama kit og var á ERA turbo mini, sem voru framleiddir í kringum ´90.