Ég hafði pantað mér þurrkublöð á e39 hjá Tækniþjónustu Bifreiða. Svo þegar póstkrafan kemur var hún svolítið hærri en ég hafði gert mér í hugarlund. Mér var svo bent á að þessi þurrkublöð væru nánast helmingi ódýrari hjá B&L. Ég lét þá póstinn endursenda blöðin til TB og pantaði frá B&L. Svo í morgun fékk ég símtal frá ágætum starfsmanni TB sem var svona bara að kanna það hvers vegna ég hafi láti endursenda þau. Ég tjáði honum það að blöðin væru ódýrari hjá B&L og hann varð hálf hvumsa og sagðist ætla að athuga þetta því hann ætlaði ekki að láta það spyrjast að umboðið væri með ódýrari hluti en hann. Ég skildi það þannig að hann ætlaði þá að lækka verðið hjá sér.
Þetta kalla ég samkeppni.



