Það er alveg ótrúlegt að lesa sum svör hérna og hvaða viðhorf sumir hafa til áfengis og akturs og ef ég á að vera hreinskilinn þá finnst mér þau hreinlega lýsa heimsku og engu öðru.
Þetta er mjög einfalt, áfengi og akstur fara EKKi saman.
Að fólk sé að segja að það sé í lagi að drekka „bara einn bjór“ er svo fáránlegt að það tekur því ekki einu sinni að ræða það. Og af hverju þá að setja mörkin við einn bjór? Af hverju ekki bara 1 1/2 eða 2? Meina, fólk þolir áfengi misvel...
Í alvöru talað, það er bara sorglegt að lesa sum svörin hérna...
Það er greinilegt að sumir sem hér hafa svarað hafa greinilega ekki náð nægum þroska til að höndla þá ábyrgð sem fylgir því að keyra bíl.