Jói wrote:Það er líka alveg glatað þegar fólk biður um að fá að blása hjá löggunum til að vita hvort það er OK, og löggurnar vilja ekki leyfa það Confused það er stundum eins og þeir vilji ekki fyrirbyggja(allavega sumir) heldur taka bara á málunum eftir á.
Það er ólöglegt að keyra ef fólk var að drekka áfengi, alveg sama hvað magnið er mikið eða lítið. Furðulegt að fólk skuli vilja blása því það var að drekka 1 lítinn bjór. Það þarf ekki áfengismæli til að segja fólki að það keyri ekki bíl þetta kvöldið. Það er kannski annað mál ef fólk var að drekka kvöldið áður, en þannig er það yfirleitt ekki, heldur er þetta fólk sem fékk sér kannski einn 0,5 bjór eða 1 vínglas. Það segir sig sjálft, að þetta fólk á ekki að þurfa að blása til að komast að þeirri niðurstöðu að það megi ekki drekka.
Að fara morguninn eftir til að blása finnst mér mjög góð hugmynd. Margir sem leggja allt of snemma af stað, skelþunnir eða jafnvel fullir ennþá.
