Jss wrote:Hvernig er það kemur ekki meira "drone" (leiðindar pústhljóð) inní bíl við það að taka þessa kúta?
Eins og hljóðið verður oft flott við svona breytingar þá er ekki gaman ef því fylgir að það séu leiðindarpústhljóð á langkeyrslu.

Ég fann engan mun í langkeyrslu á mínum eftir að ég gerði þetta. Hann var bara hljóðlátur þegar ég setti cruis-ið á í 100km/h á Reykjanesbrautinni, og alveg jafn hljóðlátur í bakaleiðinni á 110 km/h. Hef ekki farið hraðar og haldið mér á hraða síðan ég lét breyta pústinu svo ég veit ekki hvort þetta drone kemur eftir 110. En þetta hljóð kemur samt, mjög djúp nóta, en bara í svona 1000-1800rpm, undir smá inngjöf.