oskard wrote:hvað æltaru að selja kaggann þinn á ?
Ég ætlaði að setja á hann 330.000. Hann er með nýjum vetrar og sumardekkjum. (sumar 205.55.15 - vetrar 195.60.15) rafmagn í rúðum, loftkælingu, var sprautaður núna í febrúar hjá bílastjörnunni, 6*álfelgur, ný tímareim og eitthvað sem ég man ekki...
Mjög sprækur og á mikið eftir... er ekinn 238.000
svo er auðvitað ýmislegt sem þarf að fara að laga:
demparar eru að verða slappir, bremsuklossar að klárast, brotin læsing á hanskahólfi, rifið bílstjórasæti, farinn mótor í farþegarúðu... þið sjáið hann á miðvikudaginn.
Annars er ekki ólíklegt að ég sé kominn með kaupanda að honum. Einu sinni var einn sem hringdi í mig.. tvisvar, einn sem átti hann sem ég hitti fyrir mánuði á bensínstöð og svo einn vinnufélagi sem er hér í klúbbnum...