Sælir,
Félagi minn á 330d og mér til mikillar furðu passa OEM 16" felgur ekki yfir bremsurnar á honum. Eftir nánari athugun kemur í ljós að bremsurnar á 330d eru stærri en á hinum og þetta er eini E46 bíllinn fyrir utan ///M sem ber ekki 16" felgur.
Spurningin er því þessi.
Ég á til 17" M-vetrarfelgurnar niðri í skúr. Þær eru 7.5" breiðar og ET47 að framan en ET25 að aftan.
Ég veit að framfelgurnar ganga á 330d en munurinn á ET47 og ET25 er náttúrulega svolítill þannig ég veit ekki hvort þær passa.
Hvað haldið þið.
Best væri náttúrulega að testa það.


