Jonni s wrote:
Mér finnst að það ætti að líma sérstakan þráð þar sem menn segja reynslusögur af þessum bévítanst tryggingafélum sem ÖLL ganga út á það sama, að lofa öllu fögru með virkilega loðnum og undir rós legum staðreyndum.
Eins og "Ef þú ert tryggður færðu það bætt".
Þvílíkt kjaftæði!!!
Ég var með passat sem ég átti kaskótryggðan og maður hefur nú gengið út frá því að fá nánast hvaða tjón sem er bætt svo lengi sem maður borgar sjálfsábyrgðina. En svo gerist það að einhver helvítis hross taka sig til og naga bílinn allan, brjóta spegla og grjóthlíf og eyðileggja lakkið.
Ég fékk ekki krónu..
Annað dæmi.
Ég er með innbúskaskó og lendi í því að litla dóttir mín tekur sig til og teiknar með oddhvössum eyrnalokk á einn stólinn í nýja 250.000kr leðursófasettinu mínu.
Ég hringi í Vís og segi þeim sólarsöguna.
Nei því miður, ef það er hægt að sitja í því með einhverju móti bæta þeir ekki neitt voru svörin sem ég fékk.
Sum sé, hefði ég brotið grindina inní sófanum og hringt svo í þá hefði ég fengið nýtt sófasett.
Skiptu um tryggingafélag.. Cabrio var rispaður fyrir mér og ég hafði samband við tryggingafélagið mitt og notaði Káskótrygginu sem ég hafði ekki einusinni enn keypt á bílinn!! almenileg þjónusta það.
Hann er svo að sjálfsögðu kaskótryggður í dag.
Þetta var sjóvá btw