yeah, það var ég sem keypti bílinn.
Hugsaði þetta vel, ég er með allar aðstæður til þess að lappa upp á bílinn þannig að ég ákvað bara að skella mér á hann.
Taka smá lista á það sem ég geri til að byrja með til að koma honum í gegnum skoðun:
Skipta um ventlalokspakkninu
Pakkdós í gírkassanum
Skipta um bremsudiska að aftan
Yfirfara ljós, stefnuljós bilað, parkljós.
Þetta er það helsta sem ég þarf að gera, tekur ekki langan tíma og lítinn pening. Pakkdósin gæti verið leiðinleg þó.
Búinn að gera hitt og þetta í dag, t.d festa augabrúnina á ljósinu aftur, skipta um reimar, laga hurðarspjaldið bílstjóramegin og þéttingu við bílstjórarúðu. þrífa hann.
Einhver tips?
