snorri320 wrote:sá að þú segist hafa skrifað undir skýrsluna en þó með mótmælum, eftir því sem ég best veit, þá ert þú að viðurkenna brotið ef þú skrifar undir! ég lennti í svipuðu atviki þar sem lögreglumaðurinn var einn í bílnum og ekki með myndavél, (nokkur ár síðan) hann sagðist mega þetta einn í bílnum, sum sé hann laug að mér, (máttu það ekki á þeim tíma). ég bara vissi ekki betur og þegar ég fór að spurjast fyrir um þetta þá var ég spurðu hvort ég hefði skrifað undir skýrsluna og úr því að ég gerði það þá var hún orðin gild, en eins og ég segi til að byrja með þá er ég ekki 100% viss og vill ekki fullyrða neitt, en undirskrift er eftir því sem ég best veit samgild játningu, leiðréttið mig ef ég er að fara með rangt mál.
Undirritun skiptir ekki máli. Þú ert bara að skrifa undir þinn framburð en ekki skýrsluna í heild sinni. Þú ert ekki að játa á þig brotið með því að skrifa undir.


