adler wrote:Það er alveg heilmikil skíta lykt af þessum málum hjá lögregluni.
Í þessi skipti sem að ég hef þurft að hafa samskipti lögreglu þjóna þá hef ég haft það á tilfinninguni að þeir misskilji eithvað varðandi starfið því starfs heitið er lögregluþjónn og ber þeim samkvæmt því að þjónusta okkur þegnana samkvæmt þeim lögum og reglum sem gilda en í þessum málum virðist þeir vinna alfarið gegn okkur en ekki með eða fyrir okkur.
Og svo má geta þess að ákveðnar bíltegundir eru mældar frekar en aðrar þannig að það er eðlilegast að álykta að það sé meðvitaður rasismi hjá lögregluni að beina radarnum frekar að þeim tegundum sem eru líklegri til hraðaksturs.
Gaman væri að sjá hvaða tegundir eru oftast að lenda í því að vera mældar fyrir hrað akstur.
Reyndar er heitið ekki lengur lögregluþjónn. Í dag heitir þetta lögreglumaður. Og í þeim hundruðum mála sem ég hef unnið sjálfur eða tekið þátt í hefur aldrei verið um að ræða einhvern 'bílarasisma'. Tel ég afar ólíklegt að þessi 'bílarasismi' viðhafist hjá lögreglumönnum þar sem maður auðvitað beinir radarnum að þeim bíl sem hraðast ekur.
Nú reyndar líta sumir bílar út fyrir að aka á ljóshraða þegar þeir þó standa kyrrir, kannski hefur það einhver áhrif?


