Þeir keyrðu eins og brjálaðir menn til að komast í ferjuna á laugardeginum. Hefðu betur getað sleppt því því þeir fengu extra 18 tíma í Hanstholm í dallinum áður en lagt var í hann
Það var mikið búið að tala um matarmálin og þeir sögðust alltaf ætla að kaupa 30 hamborgara á Mc. Donalds án tómatsósu og örbylgjuofn áður en þeir færu um borð aftur. Ég gat ekki annað en minnst á þetta við þá í símanum í gríni..
En viti menn, jú, þeir keyptu sér 30 stykki af ostborgurum!!!!! Ertu ekki að grínast í mér! Að vísu fengu þeir þá með tómatsósu. Svo keyptu þeir líka grill og núna er það Mc Dallur í hvert mál
Þeir eru víst netsambandslausir þarna svo við verðum bara að bíða spenntir eftir að þeir lendi. Ætti að vera þriðjudagskvöld eða miðvikudagsmorgun.


Að vísu er það betra en maturinn um borð, ég skil þá nokkuð vel.
