Richard Hammond í lífshættu

Hér skal spjalla um BMW.

Postby bjornvil » Sat 23. Sep 2006 06:35

Þetta lítur betur út með hverjum deginum. Vona að hann nái sér að fullu og komi aftur í Top Gear. Þátturinn yrði aldrei eins án hans, það væri eins og að missa fjölskyldumeðlim.

Hér er grein eftir Jeremy Clarkson í The Sun, frábært að sjá að hamsturinn sé að koma til og sé með húmorinn í lagi :)

http://www.thesun.co.uk/article/0,,2-2006440317,00.html
User avatar
bjornvil
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1278
Joined: Mon 12. May 2003 14:38
Location: Keflavík

Postby Thrullerinn » Sun 24. Sep 2006 23:15

Smá upplýsingar:

olafurkr wrote:Ég var að fá fréttir af líðan Richard Hammond fyrr í dag frá einum af leikstjórum Top Gear. Richard er kominn á almenna deild, farinn á fætur og tala og grína við þá sem hann hittir. James og Jeremy, ásamt Andy Wilman framleiðanda Top Gear hafa heimsótt hann og spjallað við hann. Auk þess hefur eiginkona Richards og bróðir verið hjá honum allan tímann.

Það að hann sýnir svona góð batamerki lofa mjög góðu. Hann varð fyrir svipuðum höfuðmeiðslum og t.d. Mika Hakkinen og Karl Wendlinger fengu í Formulu 1 fyrr á árum. Þeir jöfnuðu sig alveg á nokkrum vikum og við vonum að sama verði upp á teningnum hjá Richard. Tíminn mun þó leiða það í ljós, en horfurnar eru sem sagt nokkuð góðar. Ég mun áfram fá fréttir beint frá Top Gear fólki um bata Richards.

Þó svo að Richard hafi ekki tekist að slá hraðamet í Bretlandi að þessu sinni, þá lítur út fyrir að hann hafi slegið annað met, sem er hraðasta krass sem um getur, sem maður lifir af.

Ólafur Guðmundsson.


nánar
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 15 guests