Smá meira í hraðaumræðuna og takmarkara í bíla -
Ég tel þetta slæma hugmynd vegna eftirfarandi:
Í fyrsta lagi er ég sannfærður um að þetta muni EKKI fækka alvarlegum slysum eða dauðaslysum. Fyrir því eru nokkrar ástæður en sú helsta er vegakerfi landsins sem ræður alveg jafn illa við 140 - eða 120 eins og við 200.
Í öðru lagi þá er hraði mjög afstæður. Það er algjörlega sitthvað að vera á 120 t.d. á Porsche 911 eða álíka góðum bíl, eða á 120 í Yaris eða eld gömlum japönskum budget fólksbíl.
Í þriðja lagi þá eru lög hér í landinu sem banna hraðari akstur en 90 KMH! EF það er ekki nóg, þá er eitthvað annað að!!! Annað hvort er hámarkshraðinn of lágur, VEGIRNIR of lélegir, eða kennslan og þjálfunin EKKI NÓG!
Í fjórða lagi þá er ég sannfærður um að það mun slæva ábyrgðarvitund ökumanna að TAKA FRÁ þeim ábyrgðina á þeim eigin akstri með þessum hætti. Sofandi ökumenn eru stórhættulegir og það verður nóg af þeim ef þetta verður staðreynd.
Í fimmta lagi þá breytir þetta engu um ofsaakstur því það verður ennþá hægt að keyra á 120-140 á svæðum með 30 kílómetra hraða.
Í sjötta lagi þá bendir flest til þess að hinn almenni bílnotandi sé mun færari til að ákvarða hvað er eðlilegur hámarkshraði en yfirvöld. Fólk keyrir almennt á þeim hraða sem það telur öruggan - annað væri bara ekki common sense. Það eru svo 15% ökumanna sem annaðhvort keyra of hægt eða of hratt, þar með talið þeir sem keyra ALLTOF hratt. Það væri hinsvega algerlega og fullkomlega ósanngjarnt að setja hömlur á alla sem BTW keyra ólöglega allan daginn og allsstaðar bara vegna þessara 15% sem keyra of HÆGT eða of HRATT!
Í sjöunda lagi þá hafa lækkanir á hámarkshraða valdið fleiri slysum en hækkanir á honum, meðal annars í BRETLANDI, þar sem stefna í hámarskhraða málum þar hefur beðið algjört strand og í Los Angeles þar sem alvarlegum slysum fjölgaði mikið eftir að hámarskhraði var settur á hraðbrautir þar (safespeed.org)
Í áttunda lagi myndi framkvæmd sem þessi vekja spurningar um mörg önnur mál, meðal annars stóra bróður því þetta væri ekkert annað en persónunjósnir ef fólk velur þetta ekki sjálfviljugt (sem er nákvæmlega EKKERT að) og sömuleiðis vekur þetta spurningar með flest allt annað sem fólk tekur sér fyrir hendur sem veldur því skaða og þar er til að dreifa MUN ALVARLEGRI og MEIRI mannskaða en samanlagt mannfall í umferðinni. Með sömu rökum ætti því að banna feitann og sætann mat, tóbak og áfengi svo eitthvað sé nefnt. Það er ekki nokkur leið að neita þessu og auðvitað yrðu þetta næstu skref.
Í níunda lagi þá myndi þetta seinka öllum áformum, ef ekki loka alfarið fyrir áform um kappakstursbrautir, æfingasvæði og þess háttar - ekki eingöngu vegna peninganna sem þetta mun kosta heldur einnig vegna þeirra STIGMÖTU sem ökumenn fengju á sig.
Í tíunda lagi og alls ekki síst - þá myndi þetta gera ALLA spennandi bíla útlæga úr landinu. Það mætti auðveldlega færa fyrir því rök að þetta væri mismunun og markaðshamlandi, t.d. einfaldlega vegna þess að eins og allir vita þá fer t.d. Toyota Avensis á 180 kmh fram úr Ferrari sem keyrir á 120 kmh - munurinn er bara sá að engum dettur í hug að nota sportbíl sem daily driver ef hann er ekki leiktæki líka. Þetta væri því klár mismunun.
Ég gæti haldið áfram....
Í stuttu máli þá er EKKERT, EKKI EITT EINASTA ATRIÐI SEM MÆLIR MEÐ ÞESSU, ALVEG SAMA þó tvöfalt fleiri hefðu farist í umferðinni.
HINSVEGAR - þá er ekkert nema sjálfsagt að nota búnað af þessu tagi til að koma böndum á þá ökumenn sem ekki láta segjast! Og það sem meira er, þá er það mögulegt í dag og þið getið kynnt ykkur það á heimasíðu ND á Íslandi...
www.nd.is
Þessi búnaður hefur hinsvegar EKKERT að gera í bílana hjá okkur hinum - sem keyrum allan daginn, allsstaðar og alltaf ólöglega - en ÖRUGGLEGA!
Þið megið ekki gleyma því að þorri fólks keyrir vel yfir hámarkshraða ALLA daga og allstaðar án þess að af því skapist nokkur hætta!
Heill sé hamstrinum - over and out....