JonHrafn wrote:fallegar tölur um 320d tölvukubb .... en liggur það ekki í augum uppi að þetta reynir meira á vélina og styttir líftímann?
Maður myndi halda að þetta auki álagið á ýmsa hluti en spurning hvort þeir þoli það ekki alveg. Ég hef allavega lesið um marga sem hafa keyrt með svona kubba í mörg ár og aldrei lent í neinu vesini.
Þeir segjast ekki eiga neitt við boostið í túrbínunni, breyta bara tíma og magni á eldsneytisdælu, getur lesið meira um þetta á http://www.tuningbox.com til dæmis.
