Jæja, eins og sést á póstinum hér að ofan þá er gripurinn loks kominn á klakann.
Bíllinn er allt sem ég bjóst við og í raun miklu meira en ég bjóst við.
Það er alveg ótrúlegt hvað Dynamic Drive kerfið gerir hrikalega góða hluti, maður tekur krappar beygjur eða fer í hringtorg og boddíið hallast ekki einu sinni í beygjunni, það er alveg lýginni líkast.
HUD- diplayið er spes apparat, hraðinn og viðvaranir birtast á framrúðunni, en það er engu líkara en að þetta sé að birtast á veginum um 30 m fyrir framan bílinn.
Hef ekki reynt mikið á active cruise, en það virðist vera að gera það sem það á að gera.
HUD displayið með hraðan og valinn cruise control hraða sem active cruise control er þá að takmarka vegna umferðar fyrir framan.
Vélin skilar bílnum vel áfram, og er í raun mjög hljóðlát.
Hann notar um 9 l/100 núna, en það er innanbæjar og með (var að fá nýjan bíl keyrslunni).
Öll plön varðandi kaup, innflutning, verð, búnað, ástand osf osf stóðst alveg 100% ,nema eitt, ég fékk bílinn í hendurnar einum degi fyrr en áætlað var (ekki leiðinlegt).
Smári sá um að versla og flytja inn bílinn fyrir mig og verð ég bara að nefna það þar sem það stóðst gjörsamlega allt sem maðurinn sagði, auk þess alltaf var hægt að ná í hann í síma eða email með spurningar eða annað.
Takk fyrir mig Smári, við verðum í bandi þegar ég fer út í svona aftur hehe.
Hérna eru síðan nokkrar myndir af gripnum hér á landi, reyndar mjög skítugur, en sökum slappleika þessa dagana, hef ég ekki komist í að þrífa.
_________________ Not everybody uses a Macintosh, but not everybody drives a BMW either!!!!
Last edited by ice5339 on Fri 22. Sep 2006 17:01, edited 4 times in total.
|