Að taka lán í erlendri mynt þarf ekki að vera slæmt.
Þegar að stýrivextir eru komnir í 13,5%* eins og á Íslandi þá segir það manni að það er ekki auðvelt að finna hagstæð lán!!
En nota bene. Fyrir Jón Jóns út í bæ er oftast allt of mikil áhætta fólgin í þessum lánum og margir sem gera sér ekki fulla grein fyrir því hvenær best er að nýta sér svona lán.
Það voru t.d. margir enn á fullu að taka svona lán þegar að krónan var orðin svaðalega sterk í lok seinasta árs. Þá finnst mér nú að fólk ætti að hugsa sinn gang. Finnst/fanst fólki virkilega líklegt að gengi krónunanr haldist stöðugt eða styrkist frá þeim tímapunkti?
En fyrir mitt leiti væri ég alveg til í að taka gengislán en ég myndi ekki gera það nema að ég vissi að krónan væri frekar veik á þeim tímapunkti.
T.d. er ekki ólíklegt að eftir 1-2 ár þegar að stýrivextir hafa hugsanlega lækkað (Háir stýrivextir hafa áhrif til styrkingar krónunar) og fjármagnsflæði vegna virkjanna dregist saman að þá falli gengi krónunar talsvert (Ath. allt háð því hvað gerist í verðbólgu, krónubréfamálum og virkjanamálum o.fl.). Ef að krónan lækkar á þessum tímapunkti gæti ég alveg hugsað mér að taka lán á bílinn í erlendri mynt sem ég myndi svo borga upp þegar að ég teldi krónuna vera komna aftur nálægt næsta toppi.
Vonandi að eitthvað sé skiljanlegt af þessu röfli hjá mér
Edit:* Stýrivextir voru hækkaðir í 14% á fimmtudaginn seinasta...