Ég var að rabba við einn gaur í vinnuni í dag og hann var að segja mér
frá því að það er verið að þróa nýja vél sem er ekki með neinum
stimpilstöngum. Sveifarásinn vinnur eins og kambásinn (hvernig í ansk...
getur það gengið ???). Búið er að prófa vél (bensín vél) sem er með
svona sveifarás, 2,4 l, 6 cyl lína, og hún var að skila eitthvað 260 hö og
900 og eitthvað Nm togi sem er ekkert nema hreint brjálæði.
Er einhver hér sem veit eitthvað meira um þetta og er til í að deila visku
sinni með okkur hinum.



