Ég var að kaupa mér BMW E46 320d Touring framleiddur 4/2002
Búnaðurinn sem ég man er:
* svart leður
* cruise control
* ASC
* handfrjáls GSM búnaður
* aðgerðastýri
* 17" felgur
* Digital miðstöð með loftkælingu
* sport fjöðrun
..held að þetta sé sirka allt!
En allavega þá er hann beinskiptur og virkilega ljúfur og þægilegur í akstri og vinnslan kom mér verulega á óvart. Enginn "racer" en skemmtilegur og sprækur í innanbæjarsnattinu. Hann er allur eins og nýr og hefur fengið frábært viðhald. Varla verið setið í neinu sæti nema bílstjórasætinu.
Ég er ekki búinn að taka myndir og þeir eru strax búnir að taka hann af söluskrá í Höfðahöllinni þó svo að hann hafi verið seldur kl.20:30 í kvöld
Ég ætla að auglýsa það nánar seinna en allavega er eitt stykki E32 730i V8 til sölu hér með
