Er þetta ekki orðið ágætt

Hér skal spjalla um BMW.

Er þetta ekki orðið ágætt

Postby Jonni s » Mon 14. Aug 2006 12:40

Eldur kom upp í eldhúsi í mannlausri íbúð á fyrstu hæð í þriggja hæða blokk við Neshaga 7 í Reykjavík um klukkan eitt í nótt. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins náði fljótt tökum á eldinum og tókst að koma í veg fyrir að reykur breiddist um húsið. Slökkviliðið þakkar það hversu snemma eldurinn uppgötvaðist að slökkvistarfið gekk vel fyrir sig og að skemmdir urðu ekki meiri. Lögreglan í Reykjavík segir að grunur leiki á að um íkveikju hafi verið að ræða.

Þegar lögreglan kom á vettvang gerði öflugur BMW tilraun til að aka á brott en ók á skilti og gerði síðan tilraun til að aka tvo lögregluþjóna niður.

Bíllinn fannst síðar við Sundlaug Vesturbæjar, mannlaus. Lögreglan heimsótti eiganda bifreiðarinnar sem varð margsaga um hver hefði haft afnot af bílnum um nóttina og gistir hann nú fangageymslu lögreglunnar. Rannsókn málsins stendur enn yfir og ekki er víst að þetta atvik tengist íkveikjunni. Tekið af mbl.is


Þetta er annað skiptið á stuttum tíma sem maður heyrir það sérstaklega tekið fram að um öflugann BMW hafi verið að ræða. Hitt atvikið var einhver svartur Touring sem stakk lögguna af inní Hafnarfjörð.
Þetta er bara blær, blíður og vær.
Jonni s
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 354
Joined: Thu 26. Feb 2004 11:19
Location: Skagaströnd

Postby Farmer » Mon 14. Aug 2006 13:01

Þetta er furðulegt. Það heyrast sjaldan nefndar aðrar bíltegundir þegar eitthvað svona er í gangi. Það er eins og lögreglan þoli ekki BMW, eins og atvik sem sumir kraftsmenn hafa lent í.
Hvað ætli þeir eigi við... "kraftmikill BMW" ? Eru þeir það ekki flestir!!!
E32 730i '87
Delphin Metallic


Some is good, more is better and too much is just enough!!
Farmer
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 34
Joined: Tue 28. Jun 2005 00:09
Location: Eyjafjordur

Postby IngóJP » Mon 14. Aug 2006 13:19

Farmer wrote:Þetta er furðulegt. Það heyrast sjaldan nefndar aðrar bíltegundir þegar eitthvað svona er í gangi. Það er eins og lögreglan þoli ekki BMW, eins og atvik sem sumir kraftsmenn hafa lent í.
Hvað ætli þeir eigi við... "kraftmikill BMW" ? Eru þeir það ekki flestir!!!


520i :lol:
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Postby Hannsi » Mon 14. Aug 2006 13:57

ég var stoppaður í fyrsta skiftið núna um helginna á 525 bílnum og eina sem þeir gerðu var að spurja hvort ég ætti þennan bíl :lol:
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby burgerking » Mon 14. Aug 2006 14:20

Ég var stoppaður um daginn á leiðinni heim utanaf landi... fyrsta spurning sem ég fékk "átt þú þennan bíl?" og líka þegar að ég var stoppaður niðri í bæ fyrir að vera með þokuljósin á... fyrsta sem þeir sögðu "átt þú þennan bíl?"... alveg ótrúlegt.. :roll:
e36 316 Touring 1998
Image
User avatar
burgerking
Getawaybílstjóri
 
Posts: 868
Joined: Sat 04. Mar 2006 18:24
Location: Kópavogur

Postby Logi » Mon 14. Aug 2006 15:49

Gallinn er bara sá að það eru mörg fífl sem eiga BMW. Frétti t.d. af fíflum á E39 kasta eggjum í gangandi vegfarendur um helgina :roll:

Svona lagað kemur náttúrulega óorði á BMW-eigendur almennt :!:
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby ValliFudd » Mon 14. Aug 2006 16:36

gerði öflugur BMW tilraun til að aka á brott


Ef þetta hefði verið yaris, hefði þá verið skrifað:

gerði kraftlaus toyota tilraun til að aka á brott


:lol:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Arnarf » Mon 14. Aug 2006 16:39

Svo var líka frétt í fréttablaðinu minnir mig fyrir stuttu um einhvern hraðakstur sem tengdist ekkert BMW, en fyrir ofan var mynd af BMW.
User avatar
Arnarf
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 827
Joined: Wed 21. Dec 2005 23:48

Postby anger » Mon 14. Aug 2006 17:16

eg var tekinn í yfirheirslu um daginn af leynilöggu, 2 löggur komu ut o yfirheyrðu mig og voru að tala um bilinn minn,
BMW E38 750
Gömlubílarnir
BMW e39 523
BMW e36 325
BMW 740 e38
BMW z3 '99 Coupé
BMW M5 e34
BMW 730 e32 2x
BMW 750 e32 2x
User avatar
anger
Getawaybílstjóri
 
Posts: 791
Joined: Fri 22. Oct 2004 13:04

Postby Geirinn » Mon 14. Aug 2006 19:10

Skv. almenningi eru BMW yfirleitt öflugir, flottir, dýrir, bila mikið, góðir bílar, bílar fyrir snobbað fólk, bílar sem fólk VERÐUR að spyrna við, dópbílar etc.

Við verðum bara að læra að lifa með þessu.

Hver tekur að sér að fara í Kastljós og væla fyrir okkur eins og aðrir hópar hafa gert :lol: :lol: :lol2:
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby IngóJP » Mon 14. Aug 2006 19:18

Geirinn wrote:Skv. almenningi eru BMW yfirleitt öflugir, flottir, dýrir, bila mikið, góðir bílar, bílar fyrir snobbað fólk, bílar sem fólk VERÐUR að spyrna við, dópbílar etc.

Við verðum bara að læra að lifa með þessu.

Hver tekur að sér að fara í Kastljós og væla fyrir okkur eins og aðrir hópar hafa gert :lol: :lol: :lol2:


Ég mæli með Dóra HPH....
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Postby Steini B » Mon 14. Aug 2006 20:43

ValliFudd wrote:
gerði öflugur BMW tilraun til að aka á brott


Ef þetta hefði verið yaris, hefði þá verið skrifað:

gerði kraftlaus toyota tilraun til að aka á brott


:lol:


Nei, það væri bara svona...

gerði bíll tilraun til að aka á brott



Ef það er eitthvað talað um bíla sem gera eitthvað af sér (hraðakstur og flr.) Þá er það annaðhvort BMW eða bara bíll :roll:
Sérstaklega í DV
User avatar
Steini B
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3836
Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Location: Vík í Mýrdal

Postby DiddiTa » Mon 14. Aug 2006 23:15

Blaðið var einmitt með einhverja frétt um hraðakstur líka um daginn, Talað var um 4 bíla og eitt hjól, eina ökutækið sem var nefnt var BMW bifreið sem var þó á minnstum hraða af þessum 5 og stakk hana ekki af (eins og mig minnir að 2 af þessum 5 hafi gert).

Skemmtilegt nokk.
DiddiTa
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 429
Joined: Thu 30. Dec 2004 14:16

Postby Geirinn » Tue 15. Aug 2006 00:12

Ég bíð bara eftir því að Ísland verði eins og önnur Evrópulönd... svíndýrt að tryggja BMW því að þeir eru "líklegastir til að valda tjónum vegna hraðaksturs."
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby adler » Tue 15. Aug 2006 01:53

Þetta hugsa ég varðandi þessar ofsóknir á BMW og eigendur þeirra.

Image
gaui1969@gmail.com
e36 coupe 318is. Seldur
e36 convertible 325i
e21 1982 323i
e30 top chop
Image
User avatar
adler
Getawaybílstjóri
 
Posts: 657
Joined: Fri 18. Feb 2005 22:18

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 31 guests