Sælir BMW gúrúar.
Djöfull er þægilegt að hafa stað sem maður getur varpað svona spurningu á.
Málið er það að það er búið að bjóða mér tvo bíla, báðir BMW, og ég er einfaldlega að spá hvorn bílinn ætti maður að velja.
Þið getið kannski hjálpað mér og beint mér í rétta átt.
Annar bíllinn er BMW 328 árg. 1999 (1998), ek. 170 þúsund
http://www.bilasolur.is/Car.asp?show=CA ... _ID=115167
Hitt er svo BMW 540 árg. 1996 ek. 165 þúsund
http://www.bilasolur.is/Main.asp?show=C ... _ID=101954
Báðir MJÖG freistandi.
Ég veit bara ekki hvorn bílinn ég ætti að hallast frekar að.
Þeir hafa báðir mjög sterka punkta og ég get vart gert upp á milli þeirra.
Hvert er ykkar sérfræðiálit?
Kv.,
Garri



