Er til e-ð efni sem þrífur drullu af hlutum án þess að éta upp húðanir og hægt er að blanda saman með vatni og láta hlutina liggja í yfir nótt.
Er með skítuga álfelgu sem ég þarf að hreinsa, búinn að úða á hana miklu magni af hreinsiefnum og skrúbba mikið en ekki fengið fullkominn árangur enn.
Datt þetta allt í einu í hug þegar ég hugsaði um það hversu hrein hedd eru þegar maður fær þau úr yfirhalningu. Hreinsuð með því að láta þau liggja í e-u sérstöku hreinsiefni yfir nótt.
Það væri vel reynandi að láta taka dekkið af og láta felguna liggja yfir nótt. Hver kannast ekki við felgur með miklu ógeðslugu bremsuryki "innbrenndu" í felguna. Ef þetta myndi virka væri þetta talsvert ódýrara en að láta glerblása og húða felguna og rykið þá ekki innbrennt. Ventlalok eru oft hreinsuð á sama hátt og þú eru oft húðuð.




