ég lenti í svipuðum pakka, og hélt að bremsuljósarofinn væri bara orðinn ónýtur og skifti svo um hann en þá var vandamálið enþá, og þá náttúrulega datt mér það snjallræði í hug að ljósin sjálf væru bara ónýt, þau voru farin að springa doldið mikið, og þá prófaði ég að skella ljósunum af hinum e36 bílnum hjá mér á hann, og þá var allt í góðu lagi, mæli með því að þú tjekkir hvort þau séu ekki farin að springja hjá þér afturljósin og ef svo er, er mjög líklegt að það sé vandamálið.
Já btw þá er vaka að rífa 2 e36 bíla, og báðir með heilum afturljósum, og mig minnir að annar sé með eurostyle ljósunum. fínt að fara að slíta úr þeim áður en þeir verða pressaðir. minnir að þeir vilji ekki nema einhvern 5 eða 6 kall fyrir parið af afturljósum
vonum bara að þetta hafi hjálpað e-ð
