///MR HUNG wrote:Mér finnst tildæmis í fyrra hefði mátt láta menn taka nokkra hringi í hingdæminu enn ekki bara einn og svo beint í næsta frísvæði.

///M wrote:go-kart brautin reykjanesbæ er með góða drift beygju og sama með motor-kross brautina eða hvað þetta er kallað... það er svosem ekker að því að halda spólkeppni eins og var í fyrra bara ekki kalla hana drift keppni

Átta hljómar t.d. mjög vel 
iar wrote:///M wrote:go-kart brautin reykjanesbæ er með góða drift beygju og sama með motor-kross brautina eða hvað þetta er kallað... það er svosem ekker að því að halda spólkeppni eins og var í fyrra bara ekki kalla hana drift keppni
Það er nú varla mjög gaman að hafa driftkeppni með einni beygju...
En ég verð að segja að þetta var mjög gaman að horfa á í fyrra en brautin hefði mátt vera með meiri lykkjum, kannski koma fyrir áttu og/eða eins og hr. Hung bendir á fara fleiri hringi. Langar aflíðandi beygjur svipað síðustu beygjunni en kannski aðeins styttri. Með einhverjum svona breytingum og sleppa frísvæðunum eða amk. fækka í bara eitt í lokin, væri þetta kannski driftvænna?
Auðvitað er svæðið ekki stórt en með smá útsjónarsemi er örugglega hægt að gera góða hluti. Húsgagnaplanið er að mínu mati MJÖG áhorfendavænt með grasbrekkurnar fyrir áhorfendur. Kannski ekki eins gott fyrir keppendur með allar ójöfnurnar en ..
Mér persónulega fannst keppnin í fyrra mjög skemmtileg (var bara áhorfandi, keppti ekki). Maður sá mjög vel yfir svæðið, góð stemning og almennt fjör. Hún var bara haldin aðeins of seint að sumrinu og það var orðið aðeins of dimmt undir lokin.
Hvað þetta er nákvæmlega kallað böggar mig ekki, driftkeppni með spólívafi eða spól með driftívafi. Alveg eins hægt að rífast um það og hvað á að kalla 320i með 2.5L vél.
fart wrote:Djöfulsins helvítis eindæma væll er þetta í ykkur. Það er ekki eins og íslenskir bílaáhugamenn vaði bókstaflega í tækifærum til að spreyta sig í ökuleikni, hvort sem það er hraðakstur eða annað.
Alveg gersamlega óþolandi hvað allir eru sérfræðingar í hvernig á að gera hlutina og hvað það á að kosta.
Ef þið hafið ekki áhuga á þessu þá skuluð þið bara sitja heima og horfa á fréttirnar og leyfa hinum að skemmta sér konunglega, líkt og ég, Svezel, Gunni, F2, AronJarl, Bjahja, JSS og fleiri gerðum í fyrra.
Þetta er alltaf eins með Íslendinga.. Það þykjast alltaf allir geta gert betur en þeir sem taka sig til og actually gera hlutina.
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."

Users browsing this forum: No registered users and 29 guests