Jæja þá er einum gullmolanum færra.
Það fór svartur 740 e32 í döðlur eftir að hann ók á ofsahraða á gamla kaupfélagshúsið hérna á Skagaströnd.
Ég sá sem betur fer ekki bílinn en frétti það að hann hefði lent þannig á húsinu að vélinn gekk nánast inn í miðjan bíl.
Bílstjórinn og farþeginn sluppu með minniháttar meiðsl sem betur fer en voru samkvæmt fjölmiðlum grunaðir um ölvun við akstur.

