by MRA530d » Fri 09. Jun 2006 23:44
Þetta er örugglega Imolarot / Imola Red. Hef séð nokkra X5 í sama lit í USA. Ég skoðaði þennan bíl um daginn á bílasölu efst á Höfða, held hann sé hjá Höfðabílum. Mjög flottur og lítið að sjá að honum sem ekki má laga fyrir lítið. Skil heldur ekkert í mönnum sem ekki vilja þessa vél með beinskiptum kassa. Hann bara HLÝTUR að vera mjög skemmtilegur. Vonandi fer nú einhver miskunnsamur samverji og ættleiðir hann. Gæti trúað að hann fáist á fínu verði. Sett á hann 2.750 núna.
At the speed of sound, what is the sound of speed?