Renna diska

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Renna diska

Postby GHR » Sun 08. Jun 2003 14:12

Hvar getur maður látið renna diska og veit eitthver hversu dýrt það er c.a ???
Toyotan bara strax byrjuð að bila en við hverju bjóst maður, þetta er nú bara Toyota :wink:
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól
GHR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1690
Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Location: BIRK

Postby Heizzi » Sun 08. Jun 2003 14:33

Ég veit ekki um neinn sem gerir það og ég held það sé bara almennt ekki gert lengur, það einfaldlega borgar sig ekki.
Heiðar
BMW 320i E36
Nissan Sunny 1,4LX - Seldur
User avatar
Heizzi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 425
Joined: Thu 10. Apr 2003 18:11
Location: Kópavogur

Postby saemi » Sun 08. Jun 2003 15:08

Jújú, það er gert ennþá. Ég veit að Stilling gerir það t.d. En svo er annað mál hvort það borgar sig. Ég held það kosti einhvern 1500 kall allavega að renna stykkið.

Sæmi
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Guest » Sun 08. Jun 2003 16:20

svona diskur kostar held ég 5000 kr í bílanaust..... :roll:
Guest
 

Postby GHR » Sun 08. Jun 2003 18:43

Já, ég held að þetta borgi sig þar sem þetta er mjög nýjir diskar. Allavega nýjir að framan en afturdiskarnir eru orðnir eitthvað rispaðir :?
Prófa Stillingu
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól
GHR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1690
Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Location: BIRK

Postby GHR » Sun 08. Jun 2003 18:49

En kannski ein önnur spurning, hvernig veit maður hvaða diskur er skakkur???
Maður finnur alveg að klossinn er að nuddast alltaf í diskinn og það heyrist leiðinda hljóð og vípingur og HITINN á diskinum verður alveg sjúklega heitur :burn:
En það eru diskar allan hringinn og maður veit ekki hver/hvaða diskur/ar eru svona skakkir :?
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól
GHR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1690
Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Location: BIRK

Postby O.Johnson » Sun 08. Jun 2003 22:10

Það er mælt með sérstökum mæli sem er kallaður kastmælir. Það er frekar auðvelt að gera þetta, bara leggja mælinn við diskinn og snúa disknum. Það er örugglega hægt að láta gera þetta á næstum öllum verkstæðum. Og ef að þú sérð að það er kominn svona blámi á diskinn eftir hita þá er diskurinn ónýtur. Þetta hljóð er annað hvort vegna þess að það er kominn blámi í diskinn eða það er eitthvað að klossunum. Sumar gerðir af klossum láta vita að þeir séu að verða búnir með því að gefa frá sér hljóð þegar stigið er á bremsuna.

Vonandi hjálpar þetta þér eitthvað.
Last edited by O.Johnson on Mon 09. Jun 2003 01:25, edited 1 time in total.
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

Postby saemi » Sun 08. Jun 2003 22:48

Þetta hljómar nú líka eins og að bremsudælan sé föst úti. Þannig að þú þarft líka að láta athuga bremsudæluna (ef þú hefur ekki gert þér grein fyrir því)

Sæmi
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby GHR » Mon 09. Jun 2003 02:01

saemi wrote:Þetta hljómar nú líka eins og að bremsudælan sé föst úti. Þannig að þú þarft líka að láta athuga bremsudæluna (ef þú hefur ekki gert þér grein fyrir því)

Sæmi


Nei, þetta heyrist alltaf á sama snúningi á dekkinu þ.e ef ég keyri bara á 10km þá heyrist þetta bara einu sinni pr. snúningi á dekki en það er nú samt alltaf möguleiki.
Kíki á þetta á morgun
Takk fyrir góð svör :P
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól
GHR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1690
Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Location: BIRK

Postby Haffi » Mon 09. Jun 2003 18:31

Það ískrar nú leiðinlega í mínum diskum stundum :( Spurning hvort maður skelli ekki bara WD-40 á diskana :lol: hoaeuhae
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Gunni » Mon 09. Jun 2003 19:00

Haffi wrote:Það ískrar nú leiðinlega í mínum diskum stundum :( Spurning hvort maður skelli ekki bara WD-40 á diskana :lol: hoaeuhae


hehe hringdu í mig áður, ég mæti með myndavél :clap:
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby Haffi » Mon 09. Jun 2003 19:07

I sure will :lol:
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 24 guests