JOGA wrote:Ég er alveg kominn með nóg af þessari „fígúru” en verð að hrósa þeim fyrir frábært gróða brall.
Spáið í því:
Hvað eru margir sem horfa á Eurovision?
Segjum slatti ...
Silvía hegðar sér eins og fífl og hneykslar allar. Það verður skrifað um hana í blöðin og fólk tekur eftir.
Hún er búinn að útbúa CD og bók (sem er á ensku er það ekki?).
Segjum að 100.000 manns ákveði að þetta sé fyndið og kaupi bókina. Til að hafa þetta einfalt segjum að hver bók/CD kosti 1000kr.
100.000 x 1000 = 100.000.000
Sem sagt 100 milljónir fyrir það að láta eins og fífl. Ég er ekki frá því að henni takist þetta.
Og ég spái því að hún væri glöð og ánægð (Ágústa og co) ef Silvía yrði rekin úr keppni og fái þar með enn meiri umfjöllun.
Þess vegna spái ég því að hún eigi eftir að leggja sig alla fram við að hneyksla í þessari keppni sinni.
við skulum nú gera ráð fyrir að þetta hafi allt saman kostað eitthvað og jú að gera bókina.





