E 32 bíll, update í fyrsta pósti

Hér skal spjalla um BMW.

E 32 bíll, update í fyrsta pósti

Postby JónP » Sun 14. May 2006 21:38

Mér býðst þessi 730ia e32 til kaups. Vitiði eitthvað um þennan bíl, hefur einhver hér átt hann? Maður er svolítið tvístígandi útaf keyrslunni en ég veit að þessir bílar endast slatta. Hvað eyðir þetta ca. á langkeyrslu. Þetta er v8 vélin.

Edit

Ég skellti mér á þennan og sé ekki eftir því. Þetta er alger cruiser, fínn kraftur og lítur bara ágætlega út. Hann er ekinn núna um 286.000 km en
maður trúir því varla þegar maður keyrir hann, það er rafmagn í öllu og allt virkar. Ég er búinn að keyra tæplega 900 km síðan á laugardag þegar ég fékk hann.


Image

Image
Last edited by JónP on Fri 16. Jun 2006 02:20, edited 1 time in total.
E34 540 '93
E34 525 '92 (seldur)
E32 730 V8 '94 (seldur)
E34 525 '94 (seldur)
JónP
Kassabílstjóri
 
Posts: 131
Joined: Fri 17. Jun 2005 01:45

Postby Lindemann » Sun 14. May 2006 21:48

verðið er náttúrulega í hærri kanntinum finnst mér......

En ef bíllinn er þéttur og vel með farinn, þá ætti þetta að vera ágætis kostur!

Hef heyrt að þessar litlu v8'ur séu bara nokkuð sparneytnar í langkeyrslunni.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby gunnar » Sun 14. May 2006 22:46

Þetta verð er rosalega hátt finnst mér...
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Schulii » Sun 14. May 2006 23:00

Ég ætti að geta sagt þér ýmislegt um E32 730i V8 bíl.

Ég keypti einn svoleiðis fyrir tæpum þremur árum og seldi hann aftur fyrir tveimur árum. Síðan reyndi ég að draga úr fráhvörfunum með því að fá mér E30 325ix. Var allt í læ fyrst en síðan langaði mig bara í eitthvað "aðeins kannski dýrara" til að reyna að slá enn frekar á fráhvörfin og fékk mér ´91 E34 525i. Virkilega heill og fallegur bíll sem ég varð alls ekki fyrir vonbrigðum með. Síðan fannst mér bara eitthvað "aaaðeins" vanta í viðbót til að slá á svona.. aðeins meiri fráhvörf. Þá fékk ég Bjarka til að flytja inn fyrir mig 1994 E34 540i. Það má segja að hann hafi loksins svalað tómarúminu sem hafði myndast eftir söluna á hinum upphaflega sökudólg, E32 730i V8.

Ég seldi 540i bílinn núna í janúar þar sem við kærastan eigum von á barni og ákváðum að selja báða bílana og eiga bara einn hentugan fjölskyldubíl sem myndi ekki eyða of miklu. Eftir að hafa gefið mér mjööög góðan tíma í að skoða og leita ákvað ég á endanum að kanna möguleikann á að kaupa aftur gamla góða E32 bílinn. Og viti menn, maðurinn var einmitt kominn í söluhugleiðingar og samkomulag um verð náðist þannig að ég keypti aftur gamla bílinn minn.

Það er engin spurning að þetta er sá skemmtilegasti bíll sem ég hef átt. Auðvitað er vinnslan ekkert í líkingu við 540i bílinn en ég myndi segja að það að 730i bíllinn er beinskiptur bæti það verulega upp.

M60 3.0 vélin er mjög mjög skemmtileg. Ég veit samt ekki hvernig hún er með sjálfskiptingu í sjöu, grunar að það geri hana svolítið latari og auki eyðsluna slatta. Ég og kærastan fórum austur um daginn og ég var bara á 95 á cruise controlinu. Þá var eyðslan 8.5 lítrar á hundraði. Innanbæjar er hann í svona 12-13 ef ég er mjög rólegur en getur alveg farið í 18 ef ég er að leika mér. Vill taka það fram að ég gat ómögulega látið 540i bílinn fara undir 17 lítra innanbæjar. Þetta er eflaust sama skiptingin, sama vélin fyrir utan aukið slagrými og þyngri bíll en 540i bíllinn. Þess vegna grunar mig að sjálfskiptur V8 730i eyði soldið mikið meira en beinskiptur.

En fílingurinn að keyra svona bíl sem er vel búinn og í mjög góðu standi er bara meiriháttar. Auðvitað er smekkur manna misjafn og ekki síst eintökin af þessum bílum því það getur verið gífurlegur munur á þessum bílum eftir eintökum. Svo finnst mér líka að maður fái ansi mikið fyrir peninginn því þessir bílar eru ekki dýrir. Sem mér finnst frekar skrýtið því að ég ásamt einhverjum fleirum reyndi að auglýsa eftir E32 bíl og það kom ansi lítið út úr því.

Ef ég ætti að mæla með einhverjum E32 bíl sem er til sölu þá væri það HAMAR bíllinn. Hann er auðvitað 750i bíll en eftir því sem ég best veit er hann í frábæru standi og hefur fengið mjög gott viðhald og er MJÖG ríkulega búinn bíll.

Gangi þér vel að finna bíl.
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby Lindemann » Sun 14. May 2006 23:29

750i "Hamar" bíllinn er já líklega einn besti kosturinn að mörgu leiti....750 bílarnir eru náttúrulega mjög ódýrir og þetta er örugglega super eintak....

En það er orðið svolítið annað að reka 750 en aðra.... Það virðist vera mun betra að reka v8 bílana eyðslulega og viðhaldslega séð.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby JónP » Sun 14. May 2006 23:49

gunnar wrote:Þetta verð er rosalega hátt finnst mér...


Ég fæ hann á lægra verði þannig að hafðu engar áhyggjur.

Og Schulii: Takk fyrir frábært svar, var einmitt að leita eftir svona
reynslusögu. Það er bara mjög líklegt að ég skelli mér á þennan bíl... sjáum hvað gerist eftir helgi.
E34 540 '93
E34 525 '92 (seldur)
E32 730 V8 '94 (seldur)
E34 525 '94 (seldur)
JónP
Kassabílstjóri
 
Posts: 131
Joined: Fri 17. Jun 2005 01:45

Postby Steini B » Mon 15. May 2006 00:00

Lindemann wrote:750i "Hamar" bíllinn er já líklega einn besti kosturinn að mörgu leiti....750 bílarnir eru náttúrulega mjög ódýrir og þetta er örugglega super eintak....

En það er orðið svolítið annað að reka 750 en aðra.... Það virðist vera mun betra að reka v8 bílana eyðslulega og viðhaldslega séð.


Það er virkilega fínn bíll! hef ekkert slæmt um hann að segja...
User avatar
Steini B
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3836
Joined: Fri 04. Nov 2005 13:10
Location: Vík í Mýrdal

Postby Geirinn » Mon 15. May 2006 00:15

Pabbi félaga míns keypti 730iA, leddari og mjög vel farið eintak á 300.000 þús fyrir ekki svo löngu. Bíll sem er ekinn um 300.000 km.

Ég myndi ekki borga mikið meir en það.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby anger » Mon 15. May 2006 08:32

myndi aldrei borga meira fyrir 730 ssk með litinn aukabúnað, en 300 þusund

sama hversu vel hann væri farinn og í hvaða standi hann væri, eg seldi þannig bíl í raðgreiðslum á 300 þusund og hann var í 98% góðu standi :D
BMW E38 750
Gömlubílarnir
BMW e39 523
BMW e36 325
BMW 740 e38
BMW z3 '99 Coupé
BMW M5 e34
BMW 730 e32 2x
BMW 750 e32 2x
User avatar
anger
Getawaybílstjóri
 
Posts: 791
Joined: Fri 22. Oct 2004 13:04

Postby íbbi_ » Mon 15. May 2006 09:19

E32 eru eitt skemmtilegustu akstursbílar sem ég hef átt
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Djofullinn » Mon 15. May 2006 09:24

Mér finnst ekki eðlilegt að bera þetta saman við i6 730. Auðvitað er V8 bíllinn eitthvað dýrari, fyrir utan það að þeir eru nýrri :)
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby elli » Mon 15. May 2006 12:10

anger wrote:myndi aldrei borga meira fyrir 730 ssk með litinn aukabúnað, en 300 þusund

sama hversu vel hann væri farinn og í hvaða standi hann væri, eg seldi þannig bíl í raðgreiðslum á 300 þusund og hann var í 98% góðu standi :D


Sammála ekki krónu meira en 300 þúsund.
Elli M1 fan
E32 750I '91 >

Ísland Bezt í Heimi ! [á ekki við lengur]
User avatar
elli
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1498
Joined: Tue 28. Jan 2003 22:08
Location: Hrollkalda Ísland

Postby siggik1 » Mon 15. May 2006 12:29

mér fynnst nú bara asnalegt að borga max 300 fyrir fínan e32 730 v8 en borga 700 fyrir 2,5 e30 ?

bróðir minn er einmitt með e32 v8 730 94 árgerð keyrður um 250 þús slær ekki feilpúst, með meirihluta pústs nýtt,angel eyes,stefnuljós,kastara, 18" króm felgur osfr allt nýtt og ég veit að hann myndi ekki selja á minna en 500 þús
User avatar
siggik1
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1445
Joined: Mon 18. Apr 2005 23:22
Location: Reykjavík

Postby Schulii » Mon 15. May 2006 13:07

Ég skal bara viðurkenna það hér að ég keypti minn á 530.000kr.!!!

Semsagt E32 730i V8 12/1993
Ekinn 230.000km.
15" felgur með vetrardekkjum
18" felgur með sumardekkjum
Shadow Line, topplúga, fjarstýrðar samlæsingar, svart leður allsstaðar VOLL, rafmagn í sætum m/minni, cruise control, stóra OBC, viðarinnrétting (þessi nýrri), K&N sía og eitthvað fleira.

Svo vissi ég að þetta væri frábært eintak þar sem ég átti hann áður og vinur minn þar á undan og frændi hans þar á undan.

Ég hef reyndar ekki oft séð svona heil eintök af E32 en mér finnst í lagi að borga fyrir það ef maður finnur það!
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby X-ray » Mon 15. May 2006 14:12

Gef mér leyfi að vitna í gamla karlinn :wink:

saemi wrote:
Hvað er að bíl sem er mikið ekinn????

Það skiptir ekki öllu máli. Ég myndi ekkert frekar taka eldri bíl keyrðan minna. Akstur skemmir ekki bíl, en það gerir hins vegar of lítill akstur og lélegt viðhald eða ekkert :wink:


E21-E23-E24-E28 Eru allt bílar þar sem akstur skiptir eingu, það sem skyptir máli er saga bílsins(þjónusta, viðhald, með ferð osf) T.d. Myndi ég og ef laust flreyrri hérna inni borga dá gott verð á t.d. E24 sem væri keyrður 340þús(með nótur sem ná til tunglsins og til baka) En bíl sem væri keyrður undir 200 og með ekkert til þess að bakka upp gott uppeldi hjá fyrri eigundum.

E30-E32-E34 eru bílar sem eru að fara að detta inn í þennan hóp bráðum og eflaust sumir bílar sem eru þegar dottnir.
TXIXXPX XXXTXXX X7X

German Disel power :)

E32 735i '91 SELDUR
Black on Black

Image
X-ray
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 704
Joined: Tue 03. May 2005 14:55
Location: Keflavik

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests