BMW 325i Cabrio - SELDUR

Hér getur þú auglýst BMW-inn þinn til sölu.

BMW 325i Cabrio - SELDUR

Postby Djofullinn » Wed 10. May 2006 01:19

Þá er bíllinn opinberlega til sölu.

Ætla að gerast kræfur og stela auglýsingunni frá fyrri eiganda, er þó búinn að uppfæra hana eins og við á.

Stutta útgáfan
BMW E30 325iC '89 (170 hestöfl), kom til landsins 2001.
4 eigendur (3 á íslandi)
Kraftpúst, K&N sía, LSD, Powertech fjöðrun (60/40 lækkun)
Svart leður, 4ra sæta total (tvískipt aftursæti).
Borbet A 9x16" með 215/40R16 dekkjum.


Langa útgáfan
Þetta er BMW E30, '89 árgerð, af 320i Cabriolet (blæju).
Búið er að setja í hann 325i vél, 170 hestöfl
og blæjubílarnir koma allir með diskabremsum að aftan, og þykkari
swaybars, svo í raun mætti kalla þennan bíl 325iC.

Vélin sem er í honum kemur úr 325iS bílnum hans Gunna (GSTuning)
og hún á að vera í mjög góðu standi, enda alltaf þjónustuð af
vel þekktu verkstæði úti í bandaríkjunum, og þeir vita þar að það
þarf að ventlastilla svona vélar á ákveðnum fresti.

Við hana er síðan hengt "kraftpúst" smíðað af Einari (áttavillta),
og K&N Loftsía er í orginal loftsíuboxinu. Bíllinn er mjög hávær og ekki
allir sem fíla hljóðið frá pústinu. En það er mjög gaman að keyra hann
með því. Ég á annað 325i púst sem getur fylgt bílnum ef áhugi er fyrir því.

Skipt var um drif í bílnum, sett var í hann læst drif með hlutfallið
3,91:1 í stað 3,73:1 sem er orginal í 325i.
Það er engin spurning að svona læsing bætir bílinn óendanlega mikið
í snjó og hálku, bíllinn kemst gjörsamlega hvert sem er, en síðast
en ekki síst bætir hún við "100 hestöflum af skemmtun" eins og
einhver sagði.

Einnig hefur verið skipti um fjöðrunarkerfi í bílnum, gorma og dempara
saman í setti frá Powertech sem lækka bílinn um 60mm/40mm og er mun
stífara heldur en orginal.

Bíllinn er ekinn rétt um 160 þúsund, vélin sennilega yfir 200 þúsund.
Í ljósi þess að hún hefur góða þjónustusögu og gott hljóð myndi
ég telja að hún væri í mjög góðu ástandi.

Eigendaferill bílsins er stuttur og laggóður.
Upprunalegur eigandi bílsins bjó á Ítalíu og er bíllinn keyptur þar.
Hann átti hann í 7 ár eða svo.
Því næst kaupir Íslendingur bílinn af honum, og á hann úti í einhvern
tíma og flytur hann svo heim til Íslands 2001.
Árni keypti hann síðan af honum 2003, ég kaupi síðan bílinn af Árna
sumarið 2005 og er þar með fjórði eigandi bílsins,
þriðji á íslandi.

Innréttingin sem er í bílnum er að mínu mati sú allra flottasta sem hægt
er að fá í E30, þ.e. svartir leðraðir körfustólar, og tvískipt aftursæti.
Í bílnum er að sjálfsögðu CHECK tölva, sem lætur mann vita af helstu
vandamálum - sprungnum perum, lágu olíumagni, lágu kælivatnsmagni.

Hvað varðar blæjuna sjálfa þá hefur hún ekki verið til neinna vandræða
á þeim tíma sem ég hef átt bílinn. Blæjan sjálf er nýleg, þar sem að
brotist var inn í bílinn áður en hann kom til landsins og blæjan skorin.
Blæjan sjálf lekur aldrei, en í mestu rigningarDEMBUNUM eiga listar yfir
rúðum frammí það til að dropa.

Eflaust er hægt að kaupa nýja lista eða álíka, en þetta hefur aldrei
verið neitt vandamál svo ég hef lítið velt því fyrir mér.

Þetta er ALLS ekki bíll fyrir alla. Þetta er hrár mjög stífur bíll sem skröltir
í, er mjög hávær og mjög laus að aftan.
Þannig að ef þú ert að leita að þægilegum rúntara þá er þetta ekki bíllinn
fyrir þig.

Hægt er að fá bílinn í nokkrum útfærslum:

Eins og hann er í dag. Stuðaralaus og á Borbet A felgunum ásamt
spacerum og löngum felguboltum. Ég get hugsanlega reddað Pre-Facelift
stuðurum á hann og síðast þegar ég vissi átti Gunni GSTuning til M-Tech I
kitt á sanngjarnan pening.
Verð 700.000 kr stgr.

Eins og að ofan nema með M-Tech II stuðurum/svuntum ásamt facelift
járnframsvuntu sem þarf til að setja M-tech II dótið á og facelift þokuljós.
Það verður málað og ásett.
Verð 800.000 kr stgr.

Eins og hann er í dag nema án Bobret felgnanna. Þá myndi hann
afhendast á 14/15" ál/stálfelgum.
Verð 600.000 kr stgr.

Eins og að ofan nema með opnu drifi í stað 3.91:1 LSD þar sem mig
langar rosalega að eiga drifið áfram fyrir næsta E30 bíl sem ég kaupi.
Verð 550.000 kr stgr.

Meðfylgjandi eru tvær myndir af bílnum en einnig er hægt að fara á
eftirfarandi slóð til að sjá fleiri myndir:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... &start=135


Image

Image

Nánari upplýsingar fást hér, í PM eða á meilið danieltosti@internet.is
Last edited by Djofullinn on Fri 08. Sep 2006 22:06, edited 3 times in total.
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby arnibjorn » Wed 10. May 2006 09:34

Þetta er svo klikkaður bíll og á léttilega möguleika á að verða einn svalasti E30 á landinu!
Ef manni finnst hann svalur stuðaralaus þá get ég ekki ímyndað mér hvað hann verður töff með Mtech II :biggrin:

Verður einhver luckymotherf***** sem kaupir þennan! Algjör snilld og sérstaklega í góða veðrinu :naughty:
Last edited by arnibjorn on Wed 10. May 2006 09:41, edited 1 time in total.
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby Eggert » Wed 10. May 2006 09:38

Þetta er virkilega solid og flottur bíll.... cabrio 4tw í góða veðrinu.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Re: BMW 325i Cabrio - LSD - Borbet A - M-Tech II ?

Postby messi » Wed 10. May 2006 10:45

ahh me wants :D:D:D
ahh!
messi
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 6
Joined: Sun 19. Mar 2006 00:48
Location: kóp

Postby Henbjon » Wed 10. May 2006 11:15

+ þetta eru næstum ónotðaðar Borbet felgur :shock:
Gangi þér vel með söluna á þessu geðveika bíl!
Henbjon
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1258
Joined: Sun 02. May 2004 13:27

Postby pallorri » Wed 10. May 2006 20:04

Var einmitt að dást að þessum yndislega bíl í gærkvöldi Danni ;)
Gangi þér vel með söluna, er viss um að hann fer mjög fljótt 8)

Kveðja
pallorri
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1452
Joined: Wed 13. Apr 2005 18:27

Postby Jónki 320i ´84 » Wed 10. May 2006 22:14

ohhhh ekki selja :?
en annars er þetta klikkaður bíll, ég sé hann á hverjum degi :wink:
Gangi þér vel með söluna, hann verður heppin sá sem að kaupir þennan 8)
Jónki
325i ´90 e30 M-techII
320i ´84 e30 Seldur
Vantar þig viðgerð á bílnum S:697-9021
Image
User avatar
Jónki 320i ´84
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1494
Joined: Sun 08. Jun 2003 03:11
Location: Reykjavík

Postby Djofullinn » Thu 11. May 2006 00:11

Ég þakka ykkur fyrir góð orð um bílinn ;) Hans verður allavega sárt saknað, það er nokkuð ljóst. Alltaf þegar ég labba frá honum sný ég mér 2-3 við til að skoða hann, alltaf.

En fyrir þá sem ekki vita hvernig M-Tech II lítur út þá myndi bílilnn preatty much líta svona út með það á fyrir utan að hann er á öðrum felgum og ekki með dökk framljós.

Image
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby Lindemann » Thu 11. May 2006 02:46

BARA------------GEÐVEIKT 8)

ps. þyrfti að kíkja á hann hjá þér einhventíman.....þegar ég hef einkabílstjóra :oops:
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby Danni » Thu 11. May 2006 02:49

Lindemann wrote:BARA------------GEÐVEIKT 8)

ps. þyrfti að kíkja á hann hjá þér einhventíman.....þegar ég hef einkabílstjóra :oops:


Ég skal kíkja á hann með þér þegar ég fer næst í bæinn!! Langar að sjá þennan bíl 8)
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Postby Djofullinn » Thu 11. May 2006 09:30

Kannski óþarfi að taka það fram að 550.000 kr fyrir þetta lítið keyrðan
325i Cabrio með svörtum leðurstólum er FÁRANLEGA gott verð!

Þó er þetta náttúrulega 17 ára gamall E30 bíll og mætti nú alveg fara að
endurnýja hitt og þetta í honum eins og gengur og gerist.
Það er nú ekkert stórvægilegt að honum samt.
Það mætti alveg fara að mála hann aftur, lakkið er svona sæmilegt bara.
Fóðringar fyrir gírstöng eru orðnar vel slappar. Ég ætlaði reyndar alltaf að
skipta um þær en þetta böggar mig bara ekki neitt þannig að það var
aldrei gert. Ég held ég hafi líka aldrei átt beinskiptan BMW með 100%
heilar gírstangarfóðringar, alltaf eitthvað wobbly.
Það dropar meðfram gúmmílistum fyrir ofan hurðarrúðurnar í
hellidembum og líka ef toppurinn er mikið bleyttur við þvott t.d.
Ekki heldur sniðugt að nota háþrýstidælu á hliðarrúðurnar þá lekur
meðfram listunum.
Síðan er farið að væla örlítið í miðstöðvarmótornum á 1 og 2 stillingu en
virðist hætta á 3 og 4.
Það er eitthvað bögg á bílstjórasætinu, það er ekki hægt að breyta
hallanum á sætisbakinu. S.s það er hægt að færa arminn en sætisbakið
er samt alltaf fast.
Þegar hann er sem kaldastur, ca. í 2-3 mín eftir að hann hefur verið
settur í gang er hægagangurinn örlítið rokkandi upp og niður.
Ég man nú ekki eftir fleiru í augnablikinu...
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby PompaDour » Fri 12. May 2006 14:29

úff.... þetta er svo sweet bíll....

Hefurðu einhverja hugmynd um hvað hann eyðir svona c.a. á hundraðið?
Verðandi BMW eigandi (vonandi) ;)
PompaDour
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 22
Joined: Wed 29. Mar 2006 16:14
Location: 108 Rvk

Postby Djofullinn » Fri 12. May 2006 14:33

Takk ;) Svona 12-13 innanbæjar og ég keyri ekki rólega
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby Hannsi » Fri 12. May 2006 16:01

Mig langar BARA mikið í blæju :drool:

verst að ég er ný búinn að kaupa annan BMW :(
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby Henbjon » Sat 13. May 2006 02:27

Ég vil ég vil ég vil ég viiil :oops: þetta er svo geðveikur bíll og þessi 800 þús kr pakki er freistandi!!
Henbjon
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1258
Joined: Sun 02. May 2004 13:27

Next

Return to Til sölu - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 52 guests